Menning

Bubbi mun rifja upp plöturnar

Ari Brynjólfsson skrifar
Bubbi Morthens er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar.
Bubbi Morthens er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Nýr hlaðvarpsþáttur í umsjón tónlistarmannsins Bubba Morthens hefur göngu sína á Hlaðvarpi Fréttablaðsins um miðja næstu viku. Í þáttunum, sem verða aðgengilegir á frettabladid.is, mun Bubbi rekja tilurð eigin platna.

Í fyrsta þættinum rifjar hann upp gerð Ísbjarnarblúss, fyrstu breiðskífu sinnar, sem kom út árið 1980. Gestir þáttarins verða Sigurður Árnason, upptökumaður plötunnar, og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari.

„Ég mun tala um hvernig upptökurnar komu mér fyrir sjónir, hverjir voru að spila og svona. Svo kalla ég inn gesti sem hafa kannski ekki verið í kastljósinu áður,“ segir Bubbi. Það er af nógu að segja frá um gerð plötunnar. Hún var tekin upp í Tóntækni, þar sem Sigurður réð ríkjum. Í sama húsi var prentsmiðja. „Við þurftum að taka mikið upp á nóttunni, þá voru vélarnar ekki í gangi. Svo var gríðarlega mikið í grænum pokum,“ segir Bubbi og hlær. „Það hverfðist allt með og þannig var Ísbjarnarblús tekinn upp í einum stórum rykk.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.