Fótbolti

AC Milan hafði betur gegn tíu mönnum Sassuolo

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Milan fagna
Leikmenn Milan fagna vísir/getty
Sjálfsmark Pol Lirola skildi að þegar AC Milan og Sassuolo mættust í ítölsku Seria A deildinni í kvöld.

Heimamenn í Mílan fengu hornspyrnu á 35. mínútu leiksins og varð Lirola fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir hornið.

Í seinni hálfleik fékk Andrea Consigli, markmaður Sassuolo, að líta rauða spjaldið fyrir að fella Krzysztof Piatek í skyndisókn og koma í veg fyrir upplagt marktækifæri.

Tíu menn gestanna náðu ekki að svara fyrir sig og því varð 1-0 sigur AC Milan raunin.

AC Milan fer því upp fyrir granna sína í Inter í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×