Enski boltinn

Rodgers um Liverpool tímann: Markmiðið var Meistaradeildarsæti en við unnum næstum því deildina

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brendan Rodgers er kominn aftur til Englands.
Brendan Rodgers er kominn aftur til Englands. vísir/getty
Brendan Rodgers, nýráðinn stjóri Leicester, var í ítarlegu viðtali við Sky Sports fyrir fyrsta leik sinn sem stjóri Leicester en Leicester mætir Watford um helgina.

Í viðtalinu ræddi Rodgers meðal annars um tíma sinn hjá Liverpool en hann stýrði Liverpool frá 2012-2015. Jurgen Klopp, núverandi stjóri Liverpool, tók svo við liðinu eftir að Rodgers hvarf á braut.

„Þegar ég kom til Liverpool var fyrsta verkefni mitt að lækka launin. Þú getur bara kíkt á leikmennina sem yfirgáfu félagið. Maxi Rodriguez, Alberto Aquialani og Pepe Reina,“ sagði Rodgers í samtali við Sky Sports.

„Verkið var að lækka launin og koma inn með yngra lið. Í janúar gátum við svo gert fyrstu kaupin og fyrir 20 milljónir punda gátum við keypt Daniel Sturridge og Philippe Coutinho.“

„Á öðru tímabilinu unnum við næstum því titilinn og komumst í Meistaradeildina. Markmiðið var að komast í topp fjóra en þriðja árið var svo erfitt því við misstum Luis Suarez og allt sprakk því við komumst í Meistaradeildina.“

Suarez kvaddi Liverpool og fór til Barcelona en Rodgers segir að það hafi tekið á að missa Suarez því liðið hafi ekki náð að finna eftirmann Suarez.

„Þetta var leiðinlegt fyrir mig því það hefði verið frábært að fara inn í þriðja árið með liðið sem við höfðum á ári tvö. Okkur leið þannig að við vorum með virkilega sterkt lið.“

„Luis yfirgaf félagið og við náðum ekki að fylla skarðið nægilega vel svo þriðja árið varð erfitt fyrir okkur því auðvitað var Steven Gerrard líka að hætta. Tvær goðsagnir hjá Liverpoool að kveðja.“

„Ég fékk einungis átta leiki á tímabili fjögur og síðan ákvað félagið að breyta til. Klopp kom inn og hefur gert frábært starf. Ég fór til Celtic og það var mögnuð reynsla,“ sagði Rodgers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×