Arsenal upp í 3. sætið eftir tíunda heimasigurinn í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2019 20:45 Ramsey fagnar eftir að hafa komið Arsenal í 2-0. vísir/getty Arsenal lyfti sér upp í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Newcastle United á heimavelli í kvöld. Skytturnar eru búnar að vinna fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum og vinna síðustu tíu leiki sína á Emirates í deildinni. Aaron Ramsey kom Arsenal yfir með góðu vinstri fótar skoti á 30. mínútu. Þegar sjö mínútur voru til leiksloka gulltryggði Alexandre Lacazette sigur Arsenal þegar hann skoraði sitt þrettánda deildarmark á tímabilinu. Newcastle er í 14. sæti deildarinnar með 35 stig, sjö stigum frá fallsæti. Enski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport