Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, og að öllum líkindum Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra, funda nú í Stjórnarráðshúsinu vegna tíðinda morgunsins af WOW air.
Samkvæmt vef Alþingis hefur þingfundur verið boðaður klukkan 10:30 líkt og venjan er á fimmtudögum en þar átti að ljúka fyrstu umræðu um fjármálaáætlun.
Breyting hafði reyndar verið gerð á starfsáætlun þingsins þar sem nefndadagur átti að vera í dag en til að ljúka umræðunni um áætlunina var settur á þingfundur.
Eitt stærsta fyrirtæki landsins, WOW air, hætti störfum í morgun. Félagið hafði átt í miklum rekstrarörðguleikum í töluverðan tíma en síðustu daga hafa hlutirnir gerst hratt.
Indigo Partners slitu viðræðum við félagið um mögulega aðkomu að því í síðustu viku. Þá hófust viðræður við Icelandair öðru sinni um mögulega aðkomu þess félags að WOW air en þeim viðræðum lauk á sunnudag.
Lítið heyrðist af stöðu WOW air á mánudag en á þriðjudag var tilkynnt að skuldabréfaeigendur félagsins hefðu samþykkt að breyta kröfum sínum í hlutafé. Kröfuhafar höfðu því í raun tekið félagið yfir og Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, var því ekki lengur eini eigandi þess. Hann var hins vegar hluthafi eins og aðrir skuldabréfaeigendur og var áfram forstjóri fyrirtækisins.
Á sama tíma og tilkynnt var um að skuldabréfaeigendur hefðu samþykkt að breyta kröfum sínum í hlutafé var tilkynnt að flugfélagið leitaði að mögulegum fjárfestum til að koma inn með fimm milljarða króna svo hægt væri að tryggja áframahaldandi rekstur flugfélagsins. Nú er ljóst að það tókst ekki.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Ráðherrar funda vegna WOW air
Tengdar fréttir
WOW air heyrir sögunni til
WOW air hefur hætt starfsemi að fullu.
Örlög WOW hafi ekki „veruleg bein áhrif“ á Arion
Stöðvun rekstrar WOW Air mun ekki hafa veruleg bein áhrif á afkomu Arion banka.
Tilfinningaþrungið bréf Skúla til starfsmanna
Skúli Mogensen segist aldrei geta fyrirgefið sjálfum sér.