Hekla sagði í svari sínu til neytendastofu að Emmsjé Gauti, sem heitir Gauti Þeyr Másson, hafi ekki fengið peningagreiðslu fyrir heldur var gerður rekstrarleigusamningur við Gauta um afnot af bíl til einkanota. Þá var gerður samstarfssamningur milli aðilanna sem felur í sér myndbirtingar hans af bílnum með tilteknum myllumerkjum auk þess sem Gauta ber að koma fram á viðburðum tengdum Heklu.
Neytendastofa segir að ekki hafi fengist nánari skýringar á fjölda viðburða eða frekari skýringar hvað í því felst. Neytendastofa lítur svo á að um endurgjald sé að ræða, verðmætin felist þannig í afnotum af bíl gegn því að koma vöru Heklu á framfæri við fylgjendur á samfélagsmiðli.
Hekla tók fram í svari sínu að notast hafi verið við myllumerkið audi_island í góðri trú um að með því væri verið að auðgreina samstarf og fylgja leiðbeiningum Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar.
Neytendastofa óskaði eftir svörum frá Gauta en ekkert svar barst.
Neytendastofa telur það ekki nóg, heldur þurfi að koma skýrt fram að um auglýsingu sé að ræða. Dugir ekki að notast við myllumerki vöru, þjónustu eða fyrirtækis eða hlekk á umrædda vöru eða fyrirtæki til að auðkenna auglýsingu.
Massíft á @audi_island #audiq5View this post on Instagram
A post shared by Emmsjé Gauti (@emmsjegauti) on Sep 11, 2018 at 11:57am PDT