Fótbolti

Real átti fjórtán skot en Barcelona vann 3-0 og er komið í úrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Suarez og Alba fagna.
Suarez og Alba fagna. vísir/getty
Barcelona er komið í úrslitaleik konungsbikarsins á Spáni eftir 3-0 sigur á Real Madrid í síðari leik liðanna í undanúrslitunum.

Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og í fyrri hálfleik í kvöld voru það heimamenn sem réðu ferðinni. Þeir náðu ekki að koma boltanum í netið og markalaust í hálfleik.

Áfram héldu heimamenn að fá færin en það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta markið. Það gerði Luis Suarez á 50. mínútu en markið gegn gangi leiksins.







Á 69. mínútu komst Barcelona í 2-0 en Raphael Varane skoraði þá í eigið net og Luis Suarez batt endahnútinn á þetta fyrir Börsunga er hann skoraði úr vippu í vítaspyrnu á 73. mínútu.

Það dugði Real ekki að eiga fjórtán skot að marki Börsunga í kvöld en gestirnir frá Katalóníu skoruðu þrjú mörk úr fjórum skotum. Þeir eru komnir í úrslitaleikinn þar sem þeir mæta annað hvort Real Betis eða Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×