Fótbolti

Árni á leið til Úkraínu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Árni ásamt umboðsmanni er hann skrifaði undir samninginn í Póllandi.
Árni ásamt umboðsmanni er hann skrifaði undir samninginn í Póllandi. MYND/INSTAGRAM
Árni Vilhjálmsson er á leið til úkraínska félagsins Cernomorec Odessa á láni frá pólska félaginu Termaliki Nieciecza en pólska vefsíðan 90minut greinir frá þessu.

Árni skrifaði undir samning við pólska liðið Termaliki Nieciecza í byrjun september en liðið er í 750 manna bæ í Póllandi. Þeir leika í B-delidinni og eru í níunda sæti deildarinnar eftir 21 leik.







Frá því að Árni gekk í raðir félagsins í september hefur hann einungis leikið fimm leiki og skorað eitt mark en í dag gekkst hann undir læknisskoðun hjá Cernomorec Odessa í Úkraínu.

Cernomorec Odessa er í ellefta og næst neðsta sæti úkraínsku úrvalsdeildarinnar. Þeir eru með fimmtán stig eftir nítján leiki og hafa einungis skorað tólf leiki í fyrstu nítján leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×