Bíó og sjónvarp

Gagnrýnandi The Guardian hrósar Ófærð fyrir að vera í takt við tímann

Birgir Olgeirsson skrifar
Aðdáendur góðra lopapeysa fá sinn skerf og málin rædd á meðan mjólkurglas er teygt í einum sopa.
Aðdáendur góðra lopapeysa fá sinn skerf og málin rædd á meðan mjólkurglas er teygt í einum sopa. Mynd/Lilja Jóns
Gagnrýnandi breska dagblaðsins The Guardian heldur vart vatni yfir nýjustu þáttaröðinni af Ófærð sem var frumsýnd nýverið í Bretlandi. Gagnrýnandinn segir fyrri þáttaröðina hafa verið óvæntan smell sem koma aftan að mörgum en á endanum fangað athygli tíu milljóna manna í Bretlandi, Þýskalandi og Norðurlöndunum og það ekki af ástæðulausu.

Gagnrýnandinn heitir Ellie Violet Bramley en hún segir lögreglustjórann Andra, sem leikinn er af Ólafi Darra Ólafssyni, hafa fangað söguþráð nýjustu seríunnar nokkuð vel þegar hann spyr hvort glæpurinn tengist pólitík eða hvort um fjölskylduharmleik sé að ræða? 

Bramley segir nýju seríuna fást við mörg mál sem fanga nokkurn veginn tíðaranda síðastliðinna missera. Þar á meðal upprisa öfgasinnaðra hægri manna, fordóma í garð samkynhneigðra, innflytjenda og stjórnkerfisins. Þá sé einnig að finna dágóðan skerf af eitraðri karlmennsku í seríunni. 

Átök eru á milli landsbyggðar og borgar ásamt átökum fjölskyldumeðlima við matarborðið. Stjórnmálamenn velji hagsmuni stórfyrirtækja fram yfir samfélagið sem valdi miklu titringi. 

Bramley segir þáttinn þó ekki bara í takt við tímann heldur einnig fást við sígild málefni, þar á meðal unglinga sem neita að fara eftir fyrirmælum þeirra sem eldri eru og þá séu að finna látlausar samræður á meðan mjólkurglas er teygað í einum sopa fyrir svefninn. Þá endar hún á að nefna að þættirnir innihalda sinn skerf af frábærum ullarpeysum sem unnendur slíks fatnaðar ættu að fagna innilega. 

Gagnrýnandi skoska dagblaðsins The Herald fer einnig fögrum orðum um nýju seríuna þar sem hann kallar lögreglustjórann Andra loðnasta rannsóknarlögreglumann evrópska efnahagssvæðisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.