
Uber ekki talið ábyrgt vegna banaslyss sjálfkeyrandi bíls

Þrátt fyrir að saksóknarnir telji fyrirtækið ekki bera lagalega ábyrgð á slysinu vísuðu þeir máli ökumannsins sem sat við stýrið til rannsóknar hjá lögreglu, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Hann gæti átt yfir höfði sér ákæru vegna manndráps af gáleysi. Lögreglan hefur sagt að auðveldlega hefði verið hægt að komast hjá slysinu.
Slysið átti sér stað í borginni Tempe þar sem sjálfkeyrandi Volvo XC90-jepplingur var í tilraunaakstri. Rannsókn hefur leitt í ljós að ökumaðurinn sem sat við stýrið og átti að vera tilbúinn að grípa inn í hafi verið að streyma myndefni á símanum sínum rétt áður en bíllinn skall á tæplega fimmtuga konu sem fór yfir götuna. Hún lést af sárum sínum.
Tvær samgönguöryggisstofnanir rannsaka ennþá banaslysið. Uber hélt prófunum sínum á sjálfkeyrandi bílum áfram í desember en umfang þeirra en minna en áður en slysið átti sér stað.
Tengdar fréttir

Gafst stuttur tími til að bregðast við
Lögreglan í Tempeborg í Arizona hefur birt myndband sem sýnir það sjálfkeyrandi bíll, á vegum akstursþjónustunnar Uber, ók á gangandi vegfaranda með þeim afleiðingum að hann lést.

Uber slökkti á neyðarhemlun sjálfkeyrandi bíla
Sjálfkeyrandi bíll Uber sem varð gangandi konu að bana í Arizona átti í erfiðleikum með að greina hana og neyðarhemlun var óvirk.

Ökumaður sjálfkeyrandi Uber var að streyma þætti rétt fyrir banaslys
Lögregla í Arizona telur að hægt hefði verið að komast hjá banaslysi ef ökumaður sjálfkeyrandi Uber-bíls hefði verið með hugann við aksturinn.

Kona lést þegar hún varð fyrir sjálfkeyrandi bíl
Bíllinn var á vegum akstursþjónustunnar Uber. Bílstjóri var undir stýri en sjálfstýringin var í gangi.

Sjálfkeyrandi bílar Uber í basli fyrir banaslysið
Tilraunir fyrirtækisins höfðu ekki gengið eftir væntingum og ökumenn þurftu að grípa mun oftar inn í en hjá öðrum fyrirtækjum sem vinna að því að þróa sjálfkeyrandi bíla.

Uber hafði fækkað skynjurum á sjálfkeyrandi bílum fyrir banaslys
Aðeins einn leysinemi var á Uber-bíl sem ók á gangandi konu í síðustu viku. Framleiðandi nemanna segir að fleiri þurfi að vera til staðar til að forðast blindbletti.