Fótbolti

Tvenna Morata tryggði Atletico sigur á Sociedad

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Morata fagnar fyrra marki sínu í kvöld
Morata fagnar fyrra marki sínu í kvöld
Spænski framherjinn Alvaro Morata reyndist hetja Atletico Madrid þegar liðið sótti Real Sociedad heim í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Morata gekk í raðir Atletico frá Chelsea í janúar og hefur staðið sig með prýði.

Hann skoraði tvö mörk á þremur mínútum í kvöld en mörkin komu á 30. og 33.mínútu leiksins en fleiri mörk voru ekki skoruð.

Atletico lék síðasta hálftímann manni færri eftir að Koke fékk að líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot.

Atletico er sjö stigum á eftir Barcelona og er eina liðið sem á einhvern raunhæfan möguleika á að keppa um titilinn við katalónska stórveldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×