Þetta kemur fram í nýlegum pistli sem Björn birtir á vefsíðu sinni:
„Hér fylgja tvær myndir eftir Rúnar Gunnarsson sem birtust á vefsíðunni Viljanumsunnudaginn 17. mars. Þær vekja spurningar um hvort gætt hafi verið allra nauðsynlegra hreinlætis- og öryggiskrafna með aðkomu réttra stjórnvalda þegar borgarstjóri leyfði að Austurvelli yrði breytt í tjaldstæði og styttunni af Jóni Sigurðssyni breytt í snaga fyrir mótmælaspjöld.“
Útbreiðsla sýklaofnæmis helsta ógnin
Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað Björn á við þegar hann talar um „rétt yfirvöld“ nema það ráðist af samhenginu, sem óneitanlega vekur athygli út af fyrir sig, því fyrr í pistli sínum vísar hann til viðtals Sigurðar Boga Sævarssonar á Morgunblaðinu sem ræddi við Katrínu Andrésdóttur sem var í áraraðir héraðsdýralæknir á Suðurlandi um smitvarnir og innflutning á matvælum. Björn vitnar í orð Katrínar sem segir meðal annars.„Útbreiðsla sýklalyfjaónæmis er ein helsta heilbrigðisógnin sem steðjar að mönnum og dýrum í dag. Innflutningur á ófrystu kjöti er samt ekki endilega sú mikla vá sem haldið er fram, flutt er inn töluvert magn af frosnu kjöti sem gæti innihaldið sömu sóttkveikjur og ófryst kjöt. Og flestar sóttkveikjur, að undanskildum Camphylobacter, geymast ágætlega í frosti. Mikilvægasta vörnin er því rétt meðhöndlun matvæla, að gegnhita kjöt og þvo ávexti og grænmeti.“
Þannig verður ekki annað af ráðið en Björn telji að heilbrigðisyfirvöld hefðu átt að hafa aðkomu að mótmælunum sem eru vegna aðbúnaðar innflytjenda.
Lágt risið á mótmælendum
Þá vendir Björn sínu kvæði í kross og beinir sjónum sínum að mótmælendum á Austurvelli:„Ákvörðun borgarstjóra og að forsætisnefnd alþingis láti sér þetta lynda ýtir enn undir hnignandi virðingu borgarstjórnar og þingsins. Áður fyrr þótti máli skipta að almenningur kæmi saman á Austurvelli til að láta í ljós vilja sinn til fagnaðar eða andmæla. Nú hefur allt yfirbragð þarna breyst á þann veg að engin leið er að átta sig á hvort eitthvað skipti máli sem tengist aðgerðum á Austurvelli eða ekki, risið hefur lækkað jafn og þétt. Myndirnar segja meira en mörg orð,“ segir Björn og birtir með myndir Rúnars af tjaldinu og svo af mótmælaspjaldi sem er á styttunni af Jóni.
Lögreglan verður að fá stuðning frá stjórnvöldum. Það er óþolandi, að hælisleitendur frá Nígeríu óvirði minningu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli og misnoti íslenska fánann.
— Hannes H. Gissurarson (@hannesgi) March 18, 2019