Sannir Finnar á siglingu þegar stutt er til kosninga Atli Ísleifsson skrifar 29. mars 2019 10:08 Jussi Halla-aho er formaður Sannra Finna. EPA
Sannir Finnar mælast nú þriðji stærsti flokkurinn í Finnlandi samkvæmt nýrri könnun ríkisútvarpsins þar í landi, YLE. Rúmar tvær vikur eru til þingkosninga, en þær fara fram þann 14. apríl. Stór hluti kjósenda hafa enn ekki gert upp hug sinn hvaða flokk þeir ætli sér að kjósa. Í könnunnni mælast Sannir Finnar með 15,1 prósent fylgi, en fylgið mældist 13,3 prósent í síðustu könnun YLE sem framkvæmd var í febrúar. Sannir Finnar reka harða stefnu í innflytjendamálum. Jafnaðarmannaflokkurinn mælist sem fyrr stærstur með 20,1 prósent fylgi, og er hann eini flokkurinn sem mælist með meira en 20 prósent fylgi. Flokkurinn mældist með 21,3 prósent fylgi í síðustu könnun. Sambandsflokkurinn mæst næst stærstur með 15,8 prósent fylgi, Sannir Finnar 15,1 prósent, Miðflokkur Juha Sipilä forsætisráðherra 14,4 prósent og Græningjar 13 prósent fylgi. Sannir Finnar tóku sæti í ríkisstjórn Sipilä eftir kosningarar 2015, en eftir innanflokksátök 2017 sagði rúmur helmingur þingmanna flokksins, þar með talið formaðurinn og utanríkisráðherrann Timo Soini, skilið við þingflokkinn og mynduðu Bláa umbótaflokkinn. Blái umbótaflokkurinn átti þá áfram sæti í ríkisstjórn Sipilä, en þeir sem eftir voru í þingflokki Sannra Finna gengu til liðs við stjórnarandstöðuna. Í frétt YLE segir að um fjörutíu prósent aðspurðra hafi enn ekki gert upp hug sinn hvaða flokk þeir ætli sér að kjósa þann 14. apríl.
Finnland Tengdar fréttir Ríkisstjórn Finnlands segir af sér eftir skipbrot heilbrigðisumbóta Afsögnin kemur eftir að ríkisstjórn Juha Sipilä féll frá umbótum í heilbrigðis- og félagsmálum. 8. mars 2019 08:19 Mest lesið Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira
Ríkisstjórn Finnlands segir af sér eftir skipbrot heilbrigðisumbóta Afsögnin kemur eftir að ríkisstjórn Juha Sipilä féll frá umbótum í heilbrigðis- og félagsmálum. 8. mars 2019 08:19