City í bikarúrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2019 18:15 Gabriel Jesus skorar eina mark leiksins. vísir/getty Manchester City er komið í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á Brighton á Wembley í dag. Gabriel Jesus skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Kevins De Bruyne. City-menn voru mun sterkari í leiknum en létu eitt mark duga. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2013 sem City kemst í bikarúrslit. City hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari, síðast 2011. Í úrslitaleiknum, sem fer fram 18. maí, mætir City annað hvort Watford eða Wolves. Enski boltinn