Enn ein lægðin væntanleg á morgun með stormi Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. apríl 2019 07:03 Enn ein lægðin á leiðinni. Vísir/vilhelm
Í dag má búast við svipuðu veðri og hefur verið undanfarna daga og á morgun er svo von á enn einni lægðinni til landsins, með stormi sunnan- og suðvestanlands, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er spáð suðaustan strekkingi á landinu, vætu með köflum vestanlands, talsverðri rigningu suðaustantil og bjartviðri með köflum fyrir norðan. Á morgun kemur enn ein lægðin upp að landinu með hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestantil og vætusömu veðri sunnan- og vestanlands. Hiti verður einnig svipaður eða upp í um 13 stig fyrir norðan. Fram að helgi er svo útlit fyrir áframhaldandi mildar suðlægar áttir með rigningu sunnan- og vestantil, en þurrt fyrir norðan. Um páskahelgina má búast við kólnandi veðri og gæti úrkoman farið úr rigningu í slyddu, en ekki er útlit fyrir að veður hafi áhrif á ferðalög yfir hátíðarnar, a.m.k ekki samkvæmt nýjustu spám, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Suðaustlæg átt 15-23 m/s, hvassast syðst, og rigning með köflum, en talsverð rigning SA-til. Heldur hægari vindur og léttskýjað á N-landi. Hiti 7 til 13 stig. Á miðvikudag, fimmtudag (skírdagur) og föstudag (föstudagurinn langi):Suðlæg átt, víða 8-15 m/s, og rigning eða súld með köflum, einkum SA-lands, en lengst af þurrt NA-til. Hiti yfirleitt 6 til 13 stig, hlýjast fyrir norðan. Á laugardag:Suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum en þurrt og bjart um NA-vert landið. Kólnar í veðri. Á sunnudag (páskadagur):Útlit fyrir að snúist í austlæga átt með rigningu eða slyddu víða, en að mestu þurrt fyrir norðan. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Innlent Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Innlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent Diljá Mist boðar til fundar Innlent „Inga gripið til orðfæris í garð blaðamanna sem engum stjórnmálamanni er sæmandi“ Innlent Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Erlent Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Erlent Valdi dauða með aftökusveit Erlent Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Innlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Taldi drenginn myndu deyja yrði hann ekki umskorinn Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní Leita að línunni Sólveig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann Viðkvæðið enn að kennarar yngri barna eigi minna skilið Vill að Ríkisendurskoðun rannsaki styrkjamálið Diljá Mist boðar til fundar Neyðarsjóður Ragnars Þórs og kennarar kallaðir í Karphúsið Samningur felldur: „Vissum að þetta stæði tæpt“ Sýknuð af ákæru fyrir að láta umskera son sinn Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Hæstiréttur fellst á að taka Hvammsvirkjunarmálið fyrir Kæru Brimbrettafélagsins vegna framkvæmdaleyfis vísað frá Þingflokksformaðurinn styður Áslaugu Örnu „Inga gripið til orðfæris í garð blaðamanna sem engum stjórnmálamanni er sæmandi“ Kom ekki nálægt innanhússtillögu sáttasemjara Fundað á ný í kennaradeilu Kennarar mótmæla við bæjarráðsfund VR greiddi Ragnari Þór rúmar tíu milljónir við starfslokin „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Frambjóðendur spurðu hvor annan: „Ég ætla að hlusta á þá“ Sjá meira