Í kynningu sem gefin var út samhliða árshlutauppgjöri á föstudaginn var greint frá þessari endurskoðun langtímaflugflotastefnu félagsins. Þar voru settar upp þrjár sviðsmyndir sem fólu í sér það að halda óbreyttri flotastefnu og halda sig alfarið við Boeing vélar, taka inn Airbus A321NEO flugvélar og reka þær samhliða Boeing 737 MAX-vélun og í þriðja lagi að hraða endurnýjun flugflotans og fara alfarið yfir í Airbus-vélar.
„Markmið er að klára þessa vinnu síðar á þessu ári,“ sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair á fjárfestakynningu fyrr í dag.
Icelandair ávallt notast við Boeing
Aðilar innan fluggeirans sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja ljóst að Icelandair myndi ekki setja viðlíka upplýsingar í loftið án þess að baki væri full alvara. Ljóst er að Airbus-vélar kæmu inn í flotann væri um mikla breytingu að ræða fyrir félagið sem hefur notast við Boeing-vélar frá upphafi. Á fjárfestakynningunni í morgun sagði Bogi að viðræður stæðu yfir við bæði Boeing og Airbus.Þeir sem fréttastofa hefur rætt við eru sammála um það að möguleikar eitt og þrjú séu líklegastir enda geti það bæði verið dýrt og flókið að reka flugvélar frá tveimur mismunandi framleiðendum. Möguleiki tvö gæti þó komið til greina, ekki síst ef Icelandair vilji staðsetja sig þannig að geta valið úr á milli þess að fara aftur alfarið í Boeing-vélar eða skipta alveg yfir í Airbus-vélar, allt eftir því hvernig framboð á flugvélum frá framleiðendunum þróast.
Í samtali við fréttastofu fyrr í dag sagði Bogi Nils að launakostnaður væri hár og leita þyrfti leiða til hagræðingar. Hefur hann áður sagt að mikilvægt sé að félagið fái meira út úr starfsmönnum sínum.
Þeir sem fréttastofa hafa rætt við eru sammála um það að Airbus geti verið álitlegur kostur fyrir Icelandair þar sem auðveldara sé í mörgum tilvikum fyrir flugmenn að færa sig á milli flugvéla frá Airbus en á milli flugvéla Boeing. Þá séu í pípunum eða nú þegar komnar á markað langdrægari týpur af A321 og því mögulegt fyrir Icelandair, velji þeir Airbus, að vera með eina yfirtegund af flugvél sem geti þjónað öllum flugleiðum í leiðakerfi félagsins. Af því væri töluvert rekstrarhagkvæmi.
Bera fullt traust til MAX-vélanna
Á fjárfestakynningunni kom fram í máli Boga að forsvarsmenn Icelandair bæru fullt traust til MAX-vélanna sem verið hafa í flugbanni um töluvert skeið eftir tvö mannskæð flugslys. Kom fram á fundinum að búist væri við því að flugbanninni yrði aflétt fyrir 15. júlí. Var Bogi þó meðal annars spurður að því hvort félagið gæti losað sig undan samningum um kaupum á fleiri MAX-vélum sem félagið er bundið af. Í svari sínu lagði Bogi áherslu á áratugalangt samstarf Boeing og Icelandair.„Við höfum ennþá trú á MAX-vélinni og teljum að hún muni reyndast Icelandair mjög vel í framtíðinni. Ef að niðurstaðan verður að fara út úr þessum samningum og taka til dæmis ekki við þessum fimm vélum sem við erum með í pöntunum á næstar og árið eftir þá er það í rauninni bara samningaatriði og lögfræðiatriði sem við færum yfir með Boeing sem við erum búin að vinna með í tugi ára,“ sagði Bogi.
Icelandair hefur jafnframt hafið viðræður við Boeing um greiðslu á skaðabótum vegna taps sem félagið hefur orðið fyrir og mum verða fyrir af völdum flugbanns MAX-vélanna. Sá kostnaður er metinn nú þegar á þrjár milljónir dollara, um 360 milljónir króna. Reiknað er með að hann fari vaxandi.