„Mér skilst að saksóknarar muni krefjast dauðadóms. Ég er algerlega sammála því,“ segir lögmaðurinn Khalil El Fataoui í samtali við norska Dagbladet.
Morðin á hinni norsku Maren Ueland, 28 ára, og hinni dönsku Louisa Vesterager Jespersen, 24 ára, vöktu mikla athygli á sínum tíma en þar réðust fjórir menn á þær og drápu þar sem þær voru í tjaldi í gönguferð sinni í Atlasfjöllum.
Áður hefur verið greint frá því að mennirnir hafi verið verið þar á ferli í þeim eina tilgangi að drepa ferðamenn. Skömmu eftir morðin fór svo myndband af þeim í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Verri en skepnur
Alls hafa nú 24 verið ákærðir vegna aðildar að morðunum. Fyrr í mánuðinum var ákveðið að fresta réttarhöldunum um tvær vikur og hefjast þau nú 16. maí. El Fataoui, sem er lögmaður fjölskyldu Vesterager Jespersen, segir það vera sinn skilningur að saksóknari komi til með að fara fram á dauðadóm yfir þrjá eða fjóra hinna ákærðu. Hann sjálfur sé því sammála.„Morðingjarnir hafa framkvæmt skelfilega hluti og Marokkó – og heimilinum öllum – stafar enn hætta af þeim,“ segir El Fataoui í samtali við Dagbladet. Hann segist ekki vera á því að allir sakborningarnir skuli hljóta dauðadóm en að fjórir þeirra séu „verri en skepnur“.

Sjaldan verið framfylgt
Jafnvel þó að mennirnir komi til með að hljóta dauðadóm er alls óvíst hvort að þeim dómi verði nokkurn tímann framfylgt. Þannig hefur enginn dauðadæmdur fangi verið tekinn af lífi í Marokkó frá árinu 1993, þó að um hundrað dauðadæmdir fangar séu nú í fangelsum landsins.Dómstóll í Marokkó hefur nú þegar dæmt svissnesk-breskan mann í tíu ára fangelsi í tengslum við morðin á Ueland og Jesepersen. Hann var fundinn sekur um að hafa verið virkur innan hryðjuverkasamtaka en var ekki dæmdur fyrir beina aðild að morðunum.