Fótbolti

Arsenal í Evrópuúrslitaleikjum: Nayim, misheppnuð víti og gleði og sorg á Parken

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Seaman niðurlútur eftir úrslitaleik Arsenal og Real Zaragoza í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Seaman fékk á sig mark af löngu færi á lokamínútu framlengingarinnar.
David Seaman niðurlútur eftir úrslitaleik Arsenal og Real Zaragoza í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Seaman fékk á sig mark af löngu færi á lokamínútu framlengingarinnar. vísir/getty
Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld.

Þetta er sjötti úrslitaleikur Arsenal í Evrópukeppni og sagan er ekki beint hliðholl Skyttunum þegar kemur að Evrópuúrslitaleikjum.

Arsenal komst í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1979-80 þar sem liðið mætti Valencia á Heysel vellinum í Brüssel.

Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Valencia betur, 5-4. Liam Brady og Graham Rix klúðruðu sínum spyrnum fyrir Arsenal.

Leikmenn Arsenal hughreysta Graham Rix sem klúðraði víti sínu í vítakeppninni gegn Valencia í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1980.vísir/getty
Arsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1993-94. Andstæðingurinn var Parma frá Ítalíu og fór úrslitaleikurinn fram á Parken í Danmörku.

Aðeins eitt mark var skorað í leiknum. Það gerði Alan Smith með skoti á lofti frá vítateigslínu á 20. mínútu. Hann tryggði Skyttunum þar með eina Evróputitilinn í sögu félagsins.

Alan Smith var hetja Arsenal gegn Parma í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1994.vísir/getty
 

Arsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa árið eftir. Skytturnar mættu þá Real Zaragoza á Parc des Princes, heimavelli Paris Saint-Germain.

Juan Esnáider kom Zaragoza yfir á 68. mínútu en níu mínútum síðar jafnaði John Hartson fyrir Arsenal.

Leikurinn var framlengdur og allt benti til þess að úrslitin myndu ráðast á vítapunktinum. En á lokamínútu framlengingarinnar skoraði Nayim, fyrrverandi leikmaður Tottenham, sigurmark Zaragoza með skoti af rúmlega 35 metra færi sem sveif yfir David Seaman í marki Arsenal.





Árið 2000 komst Arsenal í úrslit Evrópukeppni félagsliða þar sem liðið mætti Galatasary. Líkt og gegn Parma sex árum fyrr fór leikurinn fram á Parken í Kaupmannahöfn.

Úrslitin réðust í vítakeppni sem Galatasary vann, 4-1. Tyrkirnir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Davor Suker og Patrick Viera skutu í markrammann fyrir Arsenal.





Árið 2006 komst Arsenal í fyrsta og eina sinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Á leið sinni í úrslitaleikinn héldu Skytturnar hreinu í tíu leikjum í röð.

Úrslitaleikurinn, sem fór fram á Stade de France, byrjaði ekki vel fyrir Arsenal því á 18. mínútu var þýski markvörðurinn Jens Lehmann rekinn af velli fyrir brot á Samuel Eto'o. Hann varð þar með fyrsti leikmaðurinn sem var rekinn út af í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Þrátt fyrir liðsmuninn komst Arsenal yfir þegar Sol Campbell skoraði með skalla á 37. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik, Skyttunum í vil.

Barcelona sótti stíft í seinni hálfleik og pressan bar loks árangur á 76. mínútu þegar Eto'o jafnaði. Fjórum mínútum síðar skoraði varamaðurinn Juliano Belletti sigurmarkið. Annar varamaður, Henrik Larsson, lagði bæði mörkin upp. Lokatölur 2-1, Barcelona í vil sem vann þarna Meistaradeildina í annað sinn í sögu félagsins.





Leikur Chelsea og Arsenal hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×