Augsburg vill framlengja við Alfreð sem er að jafna sig á meiðslum Anton Ingi Leifsson skrifar 22. maí 2019 19:45
Alfreð Finnbogason, landsliðsframherji og framherji Augsburg, er að jafna sig á erfiðum meiðslum en hann gekkst undir aðgerð á dögunum. Alfreð ræddi við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem þeir spjölluðu meðal annars um meiðslin. „Ég er enn ekki byrjaður að æfa á fullu og ég er í þykkum skó til þess að verja ökklann á mér eftir aðgerðina. Ég er í því í tvær vikur í viðbót og get svo farið að gera meira,“ sagði Alfreð í kvöld. „Þetta var stopp-start tímabil. Ég spila fyrstu fimm og meiðist svo lítil meiðsl hér og það. Það tekur mann úr ryðma og það þekkja það allir sem hafa verið meiddir að það tekur af þér.“ „Ég verð að horfa á það jákvæða og að skora tíu mörk í einni af toppdeildunum er alltaf afrek. Það er það sem ég tek með mér og byggi mig upp núna að þetta gerist ekki oftar.“ Alfreð á eitt ár eftir af samningi sínum hjá þýska liðinu. „Þeir hafa tilkynnt mér það að þeir vilja framlengja samninginn. Það verður að koma í ljós á næstu vikum hvort við náum samkomulagi. Annars er einn fókus núna og það er að ná sér heilum,“ sagði Alfreð. Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan þar sem Alfreð ræðir meira um meiðslin, landsliðið og meira til.
Fótbolti Mest lesið Allsber kona truflaði úrslitaleikinn Sport Í beinni: Wales - Ísland | Tekst Íslandi að landa dýrmætum sigri? Fótbolti Bellamy heldur ekki vatni yfir Orra: „Verður heimsþekktur“ Fótbolti Ísland neyðist í fyrsta sinn til að spila heimaleik erlendis Fótbolti Þegar Walesverjar reyndu að gera lítið úr Íslendingum með apagrímum Fótbolti Paul hló að tilboði heimsmeistarans en skoðar málið Sport Sækja allar ruslatunnur úr Grindavík Körfubolti Leikdagur í Cardiff: „Þetta er leikþáttur frá A-Ö“ Fótbolti Ronaldo segir að næsti gestur hans muni setja Internetið á hliðina Fótbolti Snorri búinn að velja mennina sem mega spila á HM Handbolti Fleiri fréttir Hefur ekki rætt við Hareide: „Klárlega búið að ganga vel hjá honum“ Í beinni: Wales - Ísland | Tekst Íslandi að landa dýrmætum sigri? Gerir þrjár breytingar á sigurliðinu í Svartfjallalandi Klopp vildi fá Antony í stað Salah Þórdís Elva semur við Þróttara Af hverju er San Marínó framar í röðinni en Ísland? Leikdagur í Cardiff: „Þetta er leikþáttur frá A-Ö“ Hareide ætlar að stöðva taplausa hrinu Wales Ísland neyðist í fyrsta sinn til að spila heimaleik erlendis Aron á leið til Katar og verður ekki á leik kvöldsins Þjálfari Noregs rakar inn milljónum Bellamy heldur ekki vatni yfir Orra: „Verður heimsþekktur“ Fyrirliðinn trúir: „Ansi mörg vopn sem við höfum upp á að bjóða“ Daðrað við elítuna eða hætta á falli? Þegar Walesverjar reyndu að gera lítið úr Íslendingum með apagrímum Ronaldo segir að næsti gestur hans muni setja Internetið á hliðina Tengdasonur Keane skoraði fyrir enska landsliðið Hringir og hringir en fær alltaf nei Heimildaþáttaröð um lið Rooney og Guðlaugs Victors Týndu báðir vegabréfinu sínu og missa af landsleikjum San Marínó vann aftur og komst upp Króatar og Danir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum 27 þúsund miðar seldir á leikinn á morgun Landsliðskonurnar eiga von á barni saman Amorim fékk loksins að stýra æfingu hjá Man. United Liverpool fær Van Dijk fyrr til baka Jóhann Berg um Aron Einar: Ég veit hvernig honum líður Kane í viðtali við nýju styttuna af honum Svona var blaðamannafundur Íslands í Wales Aron Einar ekki með á morgun Sjá meira