Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spárnar fyrir júní birtust í morgun.
Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýti sér orkuna, klappi sér á bakið og elski lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.
Sigga Kling verður í beinni útsendingu hér á Vísi í dag og býðst lesendum að bera fram spurningar um allt milli himins og jarðar.
Útsendingin hefst klukkan 14:00. Sigga ætlar að gera sitt besta til að svara sem flestum spurningum og reyna þannig að skyggnast inn í líf okkar lesenda. Hún getur einnig sagt ýmislegt um fortíð lesenda og framtíð þeirra ef þeir biðja hana um að rýna í fæðingardag sinn. Spákonan biðlar til lesenda Vísis að koma með einlægar spurningar sem koma frá hjartanu. Ekki sé nóg að senda aðeins fæðingardaginn.
Útsendingin verður aðgengileg hér á Vísi en hún fer einnig fram í gegnum Facebook-síðu Vísis og hægt er að horfa á hana þar og skrifa spurningar sem rata beint til Siggu.
