„Þetta er það sem ég er alltaf að segja. Það er svo stutt í villimannseðlið hjá svarta manninum,“ sagði Björgvin eftir að þeir Archange Nkumu og Arnar Aðalgeirsson lentu saman í leik Hauka og Þróttar í Inkasso-deildinni þar sem Björgvin var annar lýsandinn.
Tæpar tvær vikur eru síðan atvikið átti sér stað en enn hefur verið ekki dæmt í málinu. KSÍ hefur sagt að það sé að safna gögnum í málinu en reiknað er með niðurstöðu í málinu á morgun.
Þórarinn Jónas Ásgeirsson, sem situr í stjórn knattspyrnudeildar Hauka, segir að KSÍ hafi ekki haft samband við Hauka og óskað eftir gögnum frá þeim.
Hvaða andskotans grín er þessi aganefnd? Takið bara helvítis ákvörðun. Hvaða helvítis vinnubrögð er að láta þetta hanga yfir mönnum svo vikum skiptir. Búnir að skýla sér bak við eitthverja afsökun um að safna gögnum en hafa samt ekki óskað eftir neinu frá Haukum að minnsta kosti
— Þórarinn Ásgeirsson (@ActionRed) June 5, 2019
Þetta staðfesti Þórarinn á Twitter-síðu sinni þar sem hann skaut einnig á vinnubrögð aganefndarinnar en Björgvin hefur þurft að bíða lengi eftir úrskurðinum.
Uppfært klukkan 13.55:
Samkvæmt heimildum Vísis þá var óskað eftir gögnum frá Haukum vegna málsins. Hvort Haukarnir skiluðu einhverju inn til KSÍ vegna málsins er aftur á móti ekki vitað.
Uppfært klukkan 14.20:
Í samtali við Vísi sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Hauka, að meðlimur stjórnar knattspyrnudeildar Hauka fari með rangt mál. KSÍ hafi óskað eftir gögnum frá Haukum sem hafi verið skilað inn.