Fótbolti

Lemar og Griezmann afgreiddu Bólívíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Griezmann fagnar marki sínu.
Griezmann fagnar marki sínu. vísir/getty
Frakkar lentu ekki í miklum vandræðum með Bólívíu í vináttulandsleik á Stade de la Beaujoire í Nantes í kvöld en lokatölur urðu 2-0.

Thomas Lemar, miðjumaður Atletico Madrid, skoraði fyrsta mark leiksins strax á fimmtu mínútu og síðara markið skoraði Antoine Griezmann á 53. mínútu.

Frakkarnir styrktu upp sterku liði en voru þó með fastamenn einnig á bekknum; eins og Oliver Giroud og N'Golo Kante. Hugo Lloris var svo ekki í leikmannahópnum en hann er ekki kominn til móts við hópinn.







Frakkar eru í riðli með okkur Íslendingum fyrir undankeppni EM 2020 en þeir spila við Tyrkland á laugardaginn áður en þeir spila svo við Andorra þriðjudaginn 11. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×