Fótbolti

Tyrkir hituðu upp fyrir Íslandsferð með sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mehmet Zeki Celik í landsleik í Þjóðadeildinni í haust.
Mehmet Zeki Celik í landsleik í Þjóðadeildinni í haust. vísir/getty
Tyrkland vann 2-0 sigur á Úsbekistan í vináttulandsleik í Tryklandi en 22 ára varnarmaður skoraði bæði mörk leiksins í dag.

Mehmet Zeki Celik skoraði fyrra markið á sautjándu mínútu en Celik leikur með Lille í Frakklandi. Þetta var hans fyrsta landsliðsmark.

Hann var aftur á ferðinni í síðari hálfleik og tvöfaldaði forystuna á 57. mínútu en það urðu lokatölur leiksins.

Tyrkir spila við Frakka á laugardaginn á meðan Ísland spilar við Albaníu. Þeir heimsækja svo Ísland og spila við íslenska landsliðið þriðjudaginn 11. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×