Menning

Rjómablíða á Skjaldborg

Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar
Á sunnudeginum fóru gestir hátíðarinnar í skrúðgöngu.
Á sunnudeginum fóru gestir hátíðarinnar í skrúðgöngu. Mynd/Hrund Atladóttir
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg var haldin í þrettánda sinn nú um hvítasunnuhelgina. Í lok hátíðarinnar voru veitt áhorfendaverðlaunin Einarinn, en þau hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarinn sem veitt voru í fyrsta sinn árið 2017.

Í ár hlaut heimildarmyndin Vasúlka áhrifin eftir Hrafnhildi Gunnarsdóttur Einarinn. Hún fjallar um myndbandsverkalistafólkið og frumkvöðlana Steinu og Woody Vasúlka. Komin á áttræðisaldur og í fjárkröggum voru þau fyrir tilviljun enduruppgötvuð af listaheiminum sem þau töldu sig aldrei hluta af og skutust aftur upp á stjörnuhimininn. Vasúlka áhrifin var kynnt sem verk í vinnslu árið 2017 og komu Vasúlka-hjónin jafnframt á hátíðina það ár sem heiðursgestir.

Heimildarmyndin Í sambandi eftir Pawel Ziemilski hlaut dómnefndarverðlaunin, Ljóskastarann, en hún fjallar um pólska íbúa á Íslandi og hvernig þeir halda tengslum við sína nánustu.

Dómnefndina skipuðu Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og einn stofnenda hátíðarinnar, Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur og tónskáld, og Anna Þóra Steinþórsdóttir, leikstjóri og tvöfaldur sigurvegari á Skjaldborg 2018.

Kvenfélag bæjarins bauð upp á plokkfisk á laugardeginum og herlegheitin enduðu svo með alvöru sveitaballi með hljómsveitinni Björtum sveiflum á sunnudeginum. Helga Rakel Rafnsdóttir, einn stjórnanda hátíðarinnar, segir hátíðina hafa heppast einstaklega vel og að veðurblíðan hafi alls ekki ekki skemmt fyrir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.