Fótbolti

Mahrez á skotskónum og Alsír í átta liða úrslitin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mahrez í baráttunni í kvöld.
Mahrez í baráttunni í kvöld. vísir/getty
Alsír er komið í átta liða úrslitin í Afríkukeppninni eftir öruggan 3-0 sigur á Gínea er leikið á 30. júní leikvanginum í Egyptalnadi.

Mohamed Youcef Belaili, framherji Angers í Frakklandi, skoraði fysrta markið á 24. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik.

Riyad Mahrez, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, tvöfaldaði forystuna á 57. mínútu og Adam Ounas skoraði þriðja og síðasta markið átta mínútum fyrir leikslok.







Lokatölur öruggur 3-0 sigur Alsír sem mætir annað hvort Malí eða Fílabeinsströndinni í átta liða úrslitunum. Liðin mætast annað kvöld.

°






Fleiri fréttir

Sjá meira


×