Lífið

Sara Underwood nýtur náttúru­lauga á Ís­landi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sara Underwood í Bláa Lóninu.
Sara Underwood í Bláa Lóninu. instagram
Fyrirsætan og leikkonan Sara Underwood virðist hafa notið dvalar sinnar á Íslandi í vetur en hún birti í dag myndaseríu á Instagram frá því hún heimsótti landið. Myndirnar sýna Underwood njóta nokkurra náttúrulauga sem hún sótti á meðan hún ferðaðist um landið með kærastanum sínum, Jacob Witzling.

Í yfirskrift myndanna skrifar hún að myndirnar hafi verið teknar á hringferð hennar um landið í húsbíl. Svo spyr hún fylgjendur sína í hvaða laug þeir myndu helst vilja baða sig.

Myndirnar voru að því er virðist teknar í vetur en á tveimur myndanna má sjá snævi þakin fjöll í bakgrunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.