Innlent

Snorrabraut lokuð umferð næstu daga

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Austurbær stendur við Snorragötu.
Austurbær stendur við Snorragötu. Vísir
Snorrabraut milli Flókagötu og Bergþórugötu verður lokuð fyrir umferð þann 1. og 2. ágúst, á morgun og á föstudag.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg verður grafið í gangstétt og að hluta í akbraut vegna vinnu við hitaveitu, rafmagn, ljósleiðara og götulýsingu. 

Strætó og almennri umferð er vísað um hjáleiðir meðan lokun varir, eins og sjá má á kortinu hér að neðan. Umferð suður Snorrabraut er beint á hjáleiðir um Bergþórugötu, Barónstíg og Egilsgötu. Umferð norður Snorrabraut mun hins vegar fara hjáleið um Flókagötu, Rauðarárstíg og Grettisgötu.

Kort af lokunum og hjáleiðum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×