Bernal kom í mark á undan sigurvegara síðasta árs og liðsfélaga sínum Geraint Thomas, sem varð annar. „Egan er framtíðin. Þegar ég verð 45 ára og sit á pöbbnum að horfa á hann vinna sinn tíunda Tour de France titil get ég sagt að ég kenndi honum allt sem hann kann. Það er allt í lagi að enda fyrir aftan hann,“ sagði Thomas léttur eftir keppnina.

Bernal er sérfræðingur í klifri og því kom hjólreiðasérfræðingum sigur hans ekkert sérstaklega mikið á óvart. Hann var jú í góðri stöðu áður en kapparnir lögðu af stað upp Alpana sem er hans sérgrein. Hann gekk í raðir Team Sky árið 2018 eftir að hafa heillað marga með sigrum sínum í Tour Colombia og Tour of California. Hann átti að leiða lið Ineos í ítölsku keppninni, Giro d’Italia, en meiddist í Andorra. Fyrrverandi sigurvegari Tour de France, Chris Froome, meiddist svo í júní og þá var komið að Egan að láta ljós sitt skína.
Þrír sigurvegarar í sama liði
Bernal er þriðji yngsti sigurvegari keppninnar frá upphafi. Henri Cornet var aðeins 19 ára þegar hann vann keppnina árið 1904 og Francois Faber var nokkrum dögum yngri en Bernal þegar hann hampaði titlinum árið 1909.
Flestir eru sammála um að ef ætti að búa til góðan hjólreiðamann myndi hann hjóla eins og Bernal. Hann beið þolinmóður fyrir aftan fremstu menn í hartnær þrjár vikur og í þunnu lofti Alpanna kom hann, sá og sigraði, sem þykir þroskað miðað við að kappinn er jú aðeins 22 ára.
„Í dag er ég hamingjusamasti maður í veröldinni. Ég trúi þessu varla. Takk Gee fyrir þetta,“ sagði Bernal meðal annars í sigurræðu sinni. Tilfinningarnar báru hann ofurliði nokkrum sinnum og gerði hann hlé á ræðu sinni meðan hann þurrkaði tárin.

Keppnin í ár hefur nánast boðið upp á allt. Meira að segja aurskriðu. Eftir mikla tiltekt innan hjólreiðanna þá var eitthvað í loftinu. Samkvæmt Financial Times hefur aldrei verið horft jafn mikið á Tour de France. Áhorfendur flykktust út á göturnar og keppnin minnti stundum á fótboltaleik – slík voru lætin. Og dramað og hversu mjótt var á mununum hefur glatt marga. Þá birtust lyfjaeftirlitsmenn á stundum þegar enginn átti von á þeim og ekki hafa enn borist fréttir af því að hjólreiðamenn hafa fallið á lyfjaprófi. Slíkt er jákvætt fyrir íþróttina sem heftur haft lyfjaskugga yfir sér í alltof mörg ár.