Innlent

Björgunar­sveitar­fólk reynir að bjarga hvalnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björgunarsveitarfólk reynir að hjálpa hvalnum.
Björgunarsveitarfólk reynir að hjálpa hvalnum. Vísir/Vilhelm
Grindhvalur nokkur syndir nú í hringi í sjónum úti á Eiðsgranda í Vesturbæ Reykjavíkur og heldur sig um 20-30 metra frá landi. Hvalurinn er á svipuðum slóðum og hrefna strandaði í lok maí sem vakti nokkra athygli.

Nokkrir vegfarendur á Granda hafa látið fréttastofu vita af tilvist hvalarins. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á ferðinni í morgun og myndaði hvalinn á svamli.

Uppfært klukkan 10:07

Hvalurinn færist enn nær landi og virðist kominn í einhvern vanda. Hvalaskoðunarbátur er kominn á svæðið.

Uppfært klukkan 10:35

Verið er að reyna að hjálpa hvalinum. Aðgerðir standa yfir.

Uppfært klukkan 11:03

Óskað hefur verið eftir aðstoð björgunarsveita sem eru á leið á staðinn.

Uppfært klukkan 11:44

Björgunarsveitarfólk er komið í sjóinn og er að reyna að hjálpa hvalnum.

Uppfært klukkan 14:37

Um tíu björgunarsveitarmenn reyna enn að koma hvalnum á sjó út. Hann virðist áttaviltur og leitar alltaf aftur í átt að landi.

Uppfært klukkan 15:27 

Davíð Már Bjarnason upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir í samtali við Vísi að einn björgunarsveitarbátur standi vaktina þessa stundina og reyni að halda hvalnum frá landi. Hann sé greinilega ringlaður og virðist ekki rata á haf út. Hvalurinn er kominn úr grynningum en björgunarsveitarfólk bíður eftir frekari ráðleggingum frá dýralækni um næstu skref.

Þeir sem tök hafa verða ekki sviknir af því að kíkja út á Granda og fylgjast með hvalnum.Vísir/Vilhelm
Hvalurinn á Granda í morgun.Vísir/Vilhelm
Hvalurinn í basli við Granda.Vísir/Vilhelm
Hvalurinn er í vandræðum og er verið að reyna að koma honum til aðstoðar.Vísir/Vilhelm
Töluverður fjöldi fólks hefur lagt leið sína niður í fjöru til að fylgjast með gangi mála.Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitarfólk reynir hvað það getur að koma hvalnum frá landi. Hann leitar hins vegar alltaf aftur í átt að landi.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×