Innlent

Reyndu að koma fölsuðum peningum í um­ferð

Atli Ísleifsson skrifar
Mennirnir fengu að gista fangageymslur.
Mennirnir fengu að gista fangageymslur. vísir/vilhelm
Lögreglan handtók í nótt tvo ölvaða menn í Austurstræti. Mennirnir eru grunaðir um þjófnað og fjársvik en þeir munu hafa verið að reyna að koma fölsuðum peningum í umferð.

Fyrir vikið fengu þeir að gista fangageymslur í nótt og fer mál þeirra í rannsókn.

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti einnig að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×