Í kynningu leiðanetsins á vefsíðu Strætó segir að stofnleiðanetið sé skipulagt sem burðarásinn í kerfinu. Tilgangur þess verði að flytja mikinn fjölda farþega á sem stystum tíma. Áætlað er að vagnar á stofnleiðum aki á 7-10 mínútna fresti á annatímum og 15-20 mínútna fresti utan annatíma. Þá er áætlað að borgarlínan muni leysa hluta stofnleiðanets Strætó af hólmi eftir því sem sérrými Borgarlínu byggist upp.
Þá verður leitast við að tengja hverfi höfuðborgarsvæðisins við stofnleiðanet Strætó og Borgarlínu. Áætlað er að almennar leiðir aki á 15 mínútna tíðni á annatíma og á 20-30 mínútna tíðni utan annatíma.

Umfangsmestu breytingarnar munu felast í nýju skipulagi við Hlemm þar sem einungis verður gegnumakstur almenningssamgangna, nýrri endastöð á BSÍ reit, brú yfir Fossvog og nýrri skiptistöð í Vogabyggð.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, tók leiðanetið til umfjöllunar á Twitter-reikningi sínum í gær. Hún sagði leiðanetið byggt á svokölluðu „Ridership“-neti, sem feli í sér ákveðnar breytingar á núverandi Strætókerfi.
„Í slíku neti er mest tíðni þar sem þéttleiki íbúa og vinnustaða er mestur. Leiðirnar eru beinni, með örari tíðni, styttri ferðatíma og fleiri farþega. Á móti, gætu farþegar þurft að fara lengri vegalengdir á næstu biðstöð.“
Áætlað er að vagnar á Stofnleiðum aki á 7-10 mínútna fresti á annatímum og 15-20 mínútna fresti utan annatíma
— Sigurborg Ósk Haraldsdóttir (@SigurborgOsk) October 9, 2019
Vagnar á Almennum leiðum aka á 15 mínútna fresti á annatímum og 20-30 mínútna fresti utan annatíma pic.twitter.com/gPM8oZZDFJ
Strætó mun halda opin hús á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir geta komið við, kynnt sér leiðanetið og komið sínum ábendingum á framfæri við starfsfólk Strætó og verkefnastofu borgarlínu. Hér fyrir neðan má sjá staðsetningu og dagsetningu opnu húsanna:
Dagsetning | Tími | Staðsetning |
21. október | 15:00-18:00 | Háholt í Mosfellsbæ |
22. október | 15:00-18:00 | Mjódd |
24. október | 15:00-18:00 | Smáralind |
28. október | 15:00-18:00 | Fjörður |
29. október | 12:00-14:00 | Háskólatorg |
29. október | 16:00-18:00 | Háskólatorg |
31. október | 16:00-18:00 | Ráðhús Garðabæjar, Garðatorg 7 |