Skoðun

Má bjóða þér heilan kosninga­rétt eða hálfan?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Landið á að verða eitt kjördæmi. Sú eindregna skoðun mín að tryggja jafnan kosningarétt undirstrikar grundvallarmannréttindi í íslensku samfélagi, óháð efnahag, kyni eða búsetu. Saga misvægis atkvæða er saga pólitískra hrossakaupa. Löngu er mál að linni, þótt ekki séu allir stjórnmálaflokkar sammála þeirri nálgun.

Lýðræði, samkennd, skilningur

Fyrir ríflega tuttugu árum flutti ég mína jómfrúarræðu með öran hjartslátt, komin átta mánuði á leið. Ekki einungis gætti titrings vegna þeirra forréttinda að vera kosin af fólkinu til setu á Alþingi heldur voru þetta spennandi tímar. Breytingar á stjórnarskrá voru til umræðu en þær tóku meðal annars til kjördæmaskipunar og jafnara atkvæðavægis. Þótt skref hafi verið tekin í rétta átt þá var engu að síður misvægi atkvæða við haldið. Og út á það óréttlæti gekk mín stutta ræða.



Misvægi atkvæða getur ekki og má ekki vera skiptimynt á hinu pólitíska sviði. Sama atkvæðavægi á að gilda á milli landsmanna hvar sem þeir búa á landinu. Þingmenn verði þingmenn allra landsmanna. Slíkt eykur samkennd, skilning, samstarf og yfirsýn og ýtir undir að þingmenn vinni að samkeppnishæfara Íslandi í baráttu alþjóðasamfélagsins um lífsgæði, framfarir og ekki síst fólkið okkar. Í þeirri samkeppni er lykilatriði að Ísland sé allt undir og við þingmenn nálgumst málin með heildina í huga. Misvægi atkvæða og kjördæmaskiptingin er úrelt. Sagan sýnir að hún hefur frekar dregið taum sérhagsmuna en hagsmuna heildarinnar.



Allir einstaklingar, sama hvaða hópi þeir tilheyra verða að hafa jafna möguleika til að kjósa og vera sjálfir kjörnir. „Jafnræði þegnanna til að hafa pólitísk áhrif er meðal grundvallaratriða lýðræðisins og borgaralegra réttinda,“ sagði í skýrslu sem unnin var fyrir stjórnlaganefnd um jafnt vægi atkvæða.



Þessu er erfitt að andmæla. Mismunandi vægi atkvæða eftir kjördæmum má líkja við það að vernd eignarréttinda væri ólík milli kjördæma. Ég leyfi mér að fullyrða að enginn myndi sætta sig við það. Með sömu rökum ætti enginn að sætta sig við búsetubundna mismunun á atkvæði sínu.

Heildarendurskoðun og forgangsröðun

Í þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs og nú í niðurstöðum viðhorfskönnunar Félagsvísindastofnunar kom fram að það er eindreginn vilji þjóðarinnar að endurskoða það ranglæti sem felst í misvægi atkvæða.



Við formenn stjórnmálaflokkana verðum að taka afstöðu til þess hvort ekki sé rétt að taka forgangsröðun stjórnarskrárvinnunnar til endurskoðunar en jafnt atkvæðavægi er látið bíða til næsta kjörtímabils. Sú biðstaða er ankannaleg þegar með sanngirni er rýnt í gögn sem sýna eindreginn vilja þjóðarinnar í þessum efnum. Hún vill jafnt atkvæðavægi, eins og nágrannar okkar í Danmörku og Svíþjóð njóta. Höfum í huga að atkvæðisrétturinn sjálfur, um einn einstakling eitt atkvæði, er grunnurinn að lýðræðinu. Sagan og pólitísk hrossakaup geta ekki lengur réttlætt viðhald þessarar misskiptingar í atkvæðavægi.



Tjáningarfrelsið, rétturinn til réttlátrar málsmeðferðar og önnur mannréttindi eru jöfn og algild án tillits til þess hvar á landinu þú átt lögheimili. Það sama á að gilda um kosningaréttinn. Það var afstaða taugaspenntrar konu í jómfrúarræðunni hennar fyrir rúmum tveimur áratugum og það er afstaða hennar enn í dag.



Einn einstaklingur – eitt atkvæði.



Höfundur er þingmaður og formaður Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×