Atburðirnir sem leiddu til ákærunnar áttu sér stað í maí í fyrra. Bjarni Ólafur var þá á meðal lögregluþjóna sem brugðust við útkalli vegna heimilisófriðar á bænum Laugarási í Biskupsstungum. Lögreglumennirnir veittu Ingvari Erni Karlssyni eftirför frá bænum en hafði þá verið við drykkju í á annan sólarhring.
Eftir að Ingvar Örn hafði ekið glæfralega og þvingað einn lögreglubílanna út af veginum tók Bjarni Ólafur ákvörðun um að stöðva för hans með því að ýta aftan á horn jeppa hans. Við þriðju snertingu lögreglubílsins og jeppans missti Ingvar Örn stjórn á bifreiðinni þannig að hún valt og fór kollsteypu utan vegar. Ingvar Örn hálsbrotnaði og hlaut aðra áverka.
Bjarni Ólafur var ákærður fyrir brot í opinberu starfi og fyrir að hafa notað ólögmæta aðferð til að stöðva för jeppans. Hann neitaði sök.
Ákvörðunin um að þvinga jeppan út af talin eðlileg
Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kom fram að aksturslag Ingvars Arnar hafi verið stórhættulegt og að lögreglumenn hafi ekki getað dregið aðra ályktun en að hann væri hættulegur sjálfum sér og öðrum vegfarendum.Þegar ákveðið hafi verið að stöðva akstur Ingvars Arnar á þann hátt sem Bjarni Ólafur gerði „voru önnur úrræði til að fá ökumann […] til að stöðva aksturinn fullreynd“ að mati dómsins.
„Það er mat dómsins að við þessa[r] aðstæður hafi aðgerðaleysi og óbein eftirför ekki verið valkostur enda ljóst af aðdraganda eftirfararinnar og af eftirförinni sjálfri að ökumaður […] var hættulegur sjálfum sér og öllum vegfarendum, en fram undan var hættulegur vagarkafli,“ segir í dómsorðinu.
Ákvörðunin um að þvinga jeppann út af veginum hafi verið tekin með samþykki varðstjóra og aðrir lögreglumenn sem tóku þátt í eftirförinni hafi verið sammála um að það væri nauðsynlegt. Dómurinn taldi þá ákvörðun eðlilega „eins og á stóð“.
Aðferðinni hafi verið beitt áður hér á landi og Bjarni Ólafur hafi verið þjálfaður og hefði reynslu af því að beita henni.

Nokkur fagnaðarlæti brutust út á meðal líklega um fjörutíu lögregluþjóna sem fylltu lítinn dómsal á fjórðu hæð Héraðsdóms Reykjavíkur eftir að Guðjón St. Marteinsson, dómari, hafði kveðið upp dóminn í morgun. Þakkaði Bjarni Ólafur þeim stuðninginn.
Í viðtali við fréttamann Vísis sagðist Bjarni Ólafur ekki geta annað en taka sömu ákvörðun lenti hann í sambærilegum aðstæðum aftur.
„Það er ekkert val um annað í þessari stöðu,“ sagði hann.