Með því helsta sem fram kemur er að Palpatine keisari er snúinn aftur. Hann virðist ekki vera svokallaður „Force-ghost“ heldur virðist hann vera lifandi. Eins og hann hafi lifað það af þegar Darth Vader kastaði honum ofan í stærðarinnar holu í Return of the Jedi.

Seinna í stiklunni má sjá fleiri úr uppreisninni á sömu plánetu. Líklegast þykir mér að hún sé ný.
Því næst stingur Finn upp kollinum. Hann er að horfa í gegnum sjónauka og það er nákvæmlega ekkert merkilegt við þann hluta stiklunnar. Við heyrum hann þó segja: „Mátturinn sameinaði okkur.“

Flestir uppreisnarmennirnir, eða nánast allir, virtust deyja í síðustu mynd, The Last Jedi, en bækur sem hafa verið gefnar út á milli TLJ og ROS sýna að Leia hefur lagt mikið á sig til að byggja uppreisnina upp á milli mynda.
Einhverjir vilja meina að á milli C-3PO og Lando megi sjá Aftab, son Ackbar „It‘s a trap“ aðmíráls. Hann skaut upp kollinum í teiknimyndasögu sem gefin var út í aðdraganda útgáfu kvikmyndarinnar. Hann fær bláan hring.
Rose Tico, úr Last Jedi, sést í oggustund skömmu síðar en í því augnabliki er það mest áhugaverða fyrir aftan hana. Þar má sjá þau Dominic Monaghan, úr Lord of the Rings, og Billie Lourd, dóttur Carrie Fisher.

„Ég þekki þig,“ svarar „emo“ Kylo Ren um hæl og mætir hann Rey á áðurnefndu braki. Rey virðist reið og Kylo virðist sorgmæddur en bæði eru með geislasverð sín á lofti og virðist stefna í smá slag þeirra á milli. Sá slagur er svo staðfestur skömmu seinna.



Leikfangið heitir víst Babu Frik og hann getur forritað hvaða vélmenni sem er.
R2D2 og Chewie virðast næst vera brjálæðislega ánægðir með það að C3PO sé mögulega að fara að „deyja“. Þeir eru allavega að fagna einhverju.
C3PO er samt ekki að fara að deyja, held ég. Disney birti nefnilega einhvers konar stiklu í ágúst þar sem sjá má vélmennið með rauð augu. Hann er að undirbúa sig fyrir eitthvað, sem tengist því sem leikfangið er að gera við hann. Miðað við rauðu augun er kannski verið að gera hann vondann.
Sjá einnig: Stórar senur í nýju myndbroti úr næstu Stjörnustríðsmynd
Á myndinni hér að ofan sjáum við nýja persónu við hlið Poe sem heitir Zorri Bliss og er leikin af Keri Russel. Það er voðalega lítið vitað um hana, annað en að hún er vinur Poe.

Yfir þessu heyrum við rödd Luke Skywalker: „Að takast á við ótta eru örlög Jedi-riddara. Þín örlög,“ segir Jedi-riddarinn sem reyndi að drepa litla frænda sinn af ótta við að hann væri snúast að myrku hliðinni.
Enn sjáum við þau Rey og Kylo Ren í eða á seinna Helstirninu. Að þessu sinni eru þau stödd í rústum hásætisherbergis Palpatine og virðast þau vera að slást þar, eins og Darth Vader og Luke Skywalker gerðu á árum áður. Svo sjáum við örstutt skot af Rey og Kylo Ren stúta styttu af Darth Vader eða einhvers konar standi fyrir grímu hans í sameiningu.
Það hefur vakið athygli að í því atriði sést Rey halda á rýting í annarri hendinni. Það virðist enginn þó hafa hugmynd um hvort það merki eitthvað.
Inn á milli þessara atriða sjáum við einnig nokkrar af hetjum sögunnar ríða einhvers konar hestum til orrustu en sú orrusta á sér stað á stærðarinnar Stjörnuspilli (Star Destroyer). Þessi mynd verður augljóslega mikið sjónarspil.
Þá komum við að svolitlu merkilegu. Í lok stiklunnar stendur Rey andspænis manni sem virðist svo sannarlega vera Palpatine sjálfur og þar að auki virðist hann ekki vera svokallaður „máttar-draugur“ eins og við vitum að eru til í söguheimi Star Wars. Palpatine virðist sitja í hásæti og bíða eftir Rey.
Hann er allavega hátt uppi og mögulega eru einhverjar snúrur tengdar við hann. Þá virðist eins og hann sé á hreyfingu. Mynd af atriðinu má sjá hér að neðan.
Undir myndefninu heyrum við keisarann hlæja og svo rödd Luke: „Mátturinn verður með þér“ og Leia bætir við: „Ávallt“. Rey virðist svo mæta keisaranum ein, með geislasverð sitt á lofti.
Áætlun keisarans
Fyrri stiklur myndarinnar höfðu gefið í skyn að Palpatine myndi snúa aftur en þessi lætur líta út fyrir að hann hafi skipulagt allt sem hafi gerst. Að nú sé áætlun hans á lokastigunum. Það er líka áhugavert með tilliti til þess að svo virðist sem að keisarinn hafi falið flota af Stjörnuspillum undir yfirborð plánetu sem er ísi lögð. Plánetu þessari bregður nokkrum sinnum fyrir í stiklunni.Þegar Rey mætir keisaranum virðist hún standa á klaka og er það væntanlega á sömu plánetunni.
Til að taka saman, þá er Palpatine mættur aftur og hann virðist stjórna stærðarinnar flota. Rey og Kylo Ren eru óvinir, stundum, og uppreisnin er enn á lífi. Þá stundar Disney enn sölu leikfanga.
Eitt samt, sem er eiginlega óþolandi, er að stiklan fjallar ekkert um það sem við fengum að sjá í sumar. Þá var Rey sýnd í Sith-kufli og með tvöfalt rautt geislasverð, eins og Darth Maul var með á sínum tíma. Við fengum ekkert að sjá um það.