Sviðsstjóri í mál við Sinfóníuna og Hörpu Kristinn Haukur Guðnason skrifar 29. nóvember 2019 08:30 Verið var að undirbúa tónleika þegar slysið varð. Fréttablaðið/Ernir
Í gær var tekið fyrir mál sviðsstjóra hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands gegn hljómsveitinni og tónleikahúsinu Hörpu. Er það vegna bótakröfu í tengslum við vinnuslys sem varð árið 2013. Að sögn Einars Gauts Steingrímssonar, lögmanns sviðsstjórans, er Hörpu stefnt sem húseiganda og Sinfóníunni sem vinnuveitanda. Upphaflega var fjármálaráðuneytinu einnig stefnt sem launagreiðanda, en eftir að ljóst var að Sinfónían bæri ábyrgð var fallið frá kröfum á ríkið. Sviðsstjórinn er nú í tímabundnu leyfi frá störfum. „Þetta er heiðarlegur ágreiningur um bótaskyldu í sjálfu sér,“ segir Einar Gautur. „Deilt er um hvort öryggismálin hafi verið í lagi hjá atvinnurekanda. Við teljum að svo hafi ekki verið en þau telja að svo hafi verið.“ Slysið varð þegar verið var að undirbúa tónleika og eru meiðslin varanleg. Einar segir málið meðal annars snúast um hver sé ábyrgð atvinnurekanda, hver sé ábyrgð húseiganda og hvort þeir beri báðir ábyrgð. Dagsetning aðalmeðferðar hefur ekki verið ákveðin en líkur eru á því að hún verði í febrúar á næsta ári. Sinfóníuhljómsveit Íslands vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Ekki náðist í framkvæmdastjóra Hörpu fyrir vinnslu þessarar fréttar.
Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Vinnumarkaður Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Sindri grunaður um fjárdrátt Innlent Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Innlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt Innlent Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Innlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða Innlent Fleiri fréttir Staðfestir niðurfellingu rannsóknar á blaðamönnunum Áfellisdómur á stjórnsýslu borgarinnar og meintur fjárdráttur Að minnsta kosti þrettán milljónir og „einbeittur brotavilji“ Fleiri skora á Guðrúnu Þau munu vinna úr hagræðingartillögunum Skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita dreng í sturtuklefa Borgarstjóri vill ekki mikinn fjölda hælisleitenda í JL húsið Frestur til að skila inn tillögum rennur út í dag Fíkniefni í bala og milljónir í skúffu Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Dæmdur fyrir höfuðhögg sem leiddi til dauða Ítreka að næringarráðleggingar fela ekki í sér boð og bönn Sjálfstæðisfélög skora á Guðrúnu Tóku börnin inn óháð mönnun og fara frekar í fáliðun Ætla að kæra Sindra Þór fyrir áralangan fjárdrátt „Lausa skrúfan“ seld á Akureyri Þórdís Kolbrún gefur ekki kost á sér Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða „Draumahúsið“ sem hefði getað sparað stórfé Sindri grunaður um fjárdrátt Hælisleitendur fá ekki inni í JL eftir allt saman Ærandi þögn og klukkan tifar Halla vill leiða VR áfram Strætó fær sérakrein á Kringlumýrarbraut Leyfið heyrir sögunni til Sakleysi dætranna hafi gufað upp Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Á bak við hvert vandamál er barn sem líður illa Sjá meira