Glæpasögurnar sjaldan eða aldrei fleiri
Nú liggur hann fyrir fyrsti bóksölulisti ársins. Bryndís segir að þetta sé langstærsta skáldverkaár íslenskra rithöfunda, hvort sem litið er til skáldverka, ljóða eða barnabóka.„Það koma til að mynda út að minnsta kosti 19 nýjar íslenskar glæpasögur nú fyrir jólin þannig að í raun væri hægt að halda úti sérstökum glæpasagnalista.“

„Það eru líka svo mikil frumraunaútgáfa bæði í ljóðum og skáldverkum, ótrúlega spennandi ný kynslóð rithöfunda að spretta fram.“
Taugatitringur í útgefendum
Eins og Bryndís bendir á er jólabókaflóðið varla byrjað. Og listinn ber dám af því. Ævar Þór Benediktsson og Birgitta Haukdal ná bæði að koma tveimur titlum inn á barnabókalistann.„Ævar Þór hefur reyndar af nógu að taka enda afkastamesti barnabókahöfundur þessarar vertíðar, með 5 nýjar bækur en næst á eftir honum er Bergrún Íris Sævarsdóttir sem gefur út 4 nýjar barnabækur í ár,“ segir Bryndís.
Listinn ætti því að taka á sig eindregnari mynd eftir viku. En á sunnudaginn verður kynnt hverjir hljóta tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna svo það má segja að það ríki svolítill taugatitringur hjá útgefendum og rithöfundum í augnablikinu.
Bóksölulistinn
Söluhæstu bækurnar 1. – 24. nóvember- Tregasteinn - Arnaldur Indriðason
- Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason
- Þögn - Yrsa Sigurðardóttir
- Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson
- Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.
- Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
- Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal
- Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Hvítidauði - Ragnar Jónasson
- Hnífur - Jo Nesbø
- Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir
- Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson
- Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
- Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan ofl.
- Slæmur pabbi - David Walliams
- Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason
- Prjónastund - Lene Holme Samsö
- Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson
- Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir
- Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson
Íslensk skáldverk
- Tregasteinn - Arnaldur Indriðason
- Þögn - Yrsa Sigurðardóttir
- Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Hvítidauði - Ragnar Jónasson
- Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir
- Aðventa - Stefán Máni
- Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir
- Kokkáll - Dóri DNA
- Korngult hár, grá augu - Sjón
Þýdd skáldverk
- Hnífur - Jo Nesbø
- Ströndin endalausa - Jenny Colgan
- Rauða minnisbókin - Sofia Lundberg
- Fórnarmýrin - Susanne Jansson
- Gauksins gal - Robert Galbraith
- Það er fylgst með þér - Mary Higgins Clark
- Endurfundirnir - Viveca Sten og Camilla Sten
- Glæpur við fæðingu - Trevor Noah
- Síðasta stúlkan - Nadia Murad
- Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan
Ljóð & limrur
- Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði
- Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg
- Heimskaut - Gerður Kristný
- Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn
- Til þeirra er málið varðar - Einar Már Guðmundsson
- Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir
- Skáldið er eitt skrípatól - Guðbergur Bergsson og Fernando Pessoa
- Velkomin - Bubbi Morthens
- Úr landsuðri og fleiri kvæði - Jón Helgason
- Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir
Barnabækur - ljóð og skáldverk
- Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson
- Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.
- Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
- Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal
- Slæmur pabbi - David Walliams
- Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson
- Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason
- Randver kjaftar frá - Jeff Kinney
- Verstu börn í heimi 3 - David Walliams
- Þín eigin saga - Draugagangur - Ævar Þór Benediktsson
Barnafræði- og handbækur
- Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
- Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín
- Jólaföndur – Unga ástin mín
- Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir
- Fimmaurabrandarar - Fimmaurabrandarafjelagið
- Leitið og finnið – Hvolpasveitin - Bókabeitan
- Hvolpasveitin - Fyrsta púslbókin - Bókabeitan
- Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson
- Hvolpasveitin - risalitabók – Bókabeitan
- Blíða og Blær - Jólalitabók - Bókabeitan
Ungmennabækur
- Nornin - Hildur Knútsdóttir
- Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir
- Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten
- Hin ódauðu - Johan Egerkrans
- Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers
- Pax 2 - Uppvakningurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson
- Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
- Þrettán - Friðrik Erlingsson
- Pax 3 - Útburðurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson
Fræði og almennt efni
- Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason
- Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson
- Ekkert að fela - á slóð Samherja í Afríku - Helgi Seljan
- Prjónastund - Lene Holme Samsö
- Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson
- Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall
- Tíminn sefur - Árni Einarsson
- Hárbókin - Theodóra Mjöll
- Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
- Lífgrös og leyndir dómar - Ólína Þorvarðardóttir
Ævisögur
- Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason
- Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir
- Stöngin út - Halldór í Henson - Magnús Guðmundsson
- Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson
- Halldór Ásgrímsson ævisaga - Guðjón Friðriksson
- Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir
- Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir
- Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir
- Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein
- HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson
Uppsafnað frá áramótum
- Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
- Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason
- Gullbúrið - Camilla Läckberg
- Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan
- Barist í Barcelona - Gunnar Helgason
- Svört perla - Liza Marklund
- Tregasteinn - Arnaldur Indriðason
- LKL 2 - Gunnar Már Sigfússon
- Á eigin skinni - Sölvi Tryggvason
- Óvænt endalok - Ævar Þór Benediktsson