Fimm handteknir vegna mannsláts í Úlfarsárdal Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 8. desember 2019 17:00 Mikill viðbúnaður lögreglu var á vettvangi. Vísir/Frikki
Mikill viðbúnaður lögreglu var í Úlfarsárdal í dag vegna mannsláts. Á þriðja tímanum barst lögreglu tilkynning um að maður hefði fallið fram af svölum í hverfinu. MBL greindi fyrst frá og segir í fréttinni að lögregla hafi þurft að brjóta sér leið inn í íbúð á 2. hæð hússins. Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta svo í samtali við Vísi og sagði að fimm einstaklingar hafi verið handteknir vegna málsins. Lögregla vildi fyrst ekki gefa upp hvort maðurinn sé lífs eða liðinn, en samkvæmt nýrri tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn fluttur á Landspítalann og úrskurðaður látinn eftir komuna þangað. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var hinn látni erlendur ríkisborgari, sem og þeir fimm sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins. Margeir gat ekki gefið fréttastofu upplýsingar um tengsl einstaklinganna. Lögregla hefur lokið storfum á vettvangi og rannsókn lögreglu er á frumstigi. Fréttin hefur verið uppfærð. Vísir/Frikki Vísir/Frikki
Lögreglumál Reykjavík Andlát í Úlfarsárdal Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira