13 STRAIGHT WINS!@Giannis_An34 (35 PTS, 9 REB, 4 3PM) leads the way for the @Bucks. pic.twitter.com/Y48JAJusqF
— NBA (@NBA) December 5, 2019
Giannis Antetokounmpo skoraði 35 stig þegar Milwaukee Bucks vann 127-103 útisigur á Detroit Pistons en þetta var þrettándi sigur Bucks liðsins í röð.
Leikmenn Detroit Pistons spiluðu fast og reyndu að ná Giannis Antetokounmpo upp en hann hélt ró sinni. „Þeir vilja láta finna fyrir sér og spila fast. Þeir eru að reyna að ná þér út úr þínum leik og það er það sem maður býst við þegar maður kemur til Detroit. Það eru fleiri lið sem reyna að taka fast á mér en ég þarf bara að halda ró minni,“ sagði Giannis Antetokounmpo en litlu munaði að honum og Blake Griffin lenti saman.
Milwaukee Bucks hefur ekki unnið svo marga leiki í röð síðan liðið var með Kareem Abdul-Jabbar og Oscar Robertson og árið var 1973. Þá vann liðið sextán leiki í röð.
26 PTS (9-11 FGM) from @AntDavis23 pushes the @Lakers to their 10th-straight road W! #LakeShowpic.twitter.com/SL7fdVKYYY
— NBA (@NBA) December 5, 2019
Anthony Davis skoraði 26 stig og LeBron James var með 20 stig og 12 stoðsendingar þegar Los Angeles Lakers burstaði Utah Jazz á útivelli, 121-96. Rajon Rondo var síðan nálægt þrenunni með 14 stig, 12 stoðsendingar og 9 stoðsendingar.
Lakers vann Utah liðið 32-5 í hraðaupphlaupsstigum og skoraði 21 stig eftir tapaða bolta Utah manna. Donovan Mitchell skoraði 29 stig fyrir Utah en liðið tapaði þarna í fimmta sinn í síðustu sex leikjum sínum.
@DwightPowell33 has a PERFECT night from the floor as the @dallasmavs move to 15-6! #MFFL
24 PTS | 9-9 FGM | 2-2 3PM pic.twitter.com/eDrrGQLuhn
— NBA (@NBA) December 5, 2019
Dallas Mavericks þurfti ekki stórleik frá Slóvenanum Luka Doncic til að vinna í níunda skiptið í síðustu tíu leikjum. Dwight Powell skoraði 24 stig og hitti úr öllum níu skotum sínum þegar Dallas Mavericks vann 121-114 sigur á Minnesota Timberwolves.
Luka Doncic lét sér nægja 22 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og fékk líka tæknivillu í þriðja leikhluta. Hann sat á bekknum þegar Dallas Mavericks liðið lagði grunninn að sigrinum. Karl-Anthony Towns og Andrew Wiggins skoruðu báðir 26 stig fyrir Minnesota.
59 PTS combined! @FCHWPO (31 PTS, 5 3PM) and @KembaWalker (28 PTS, 6 3PM) lead the @celtics to 8-0 at home! pic.twitter.com/IcUVTByzZd
— NBA (@NBA) December 5, 2019
Jaylen Brown skoraði 31 stig og Kemba Walker var með 28 stig þegar Boston Celtics vann 112-93 sigur á Miami Heat sem þýðir að Boston liðið hefur unnið alla átta heimaleiki sína á þessu tímabili. Jimmy Butler var með 37 stig fyrir Miami.
Golden State Warriors tapaði enn einum leiknum nú 106-91 á móti Charlotte Hornets á útivelli. Devonte Graham skoraði tíu þrista í leiknum fyrir Charlotte og endaði með 33 stig. D'Angelo Russell sneri aftur hjá Golden State eftir níu leikja fjarveru og skoraði 18 stig.
Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt:
Portland Trail Blazers - Sacramento Kings 127-116
Utah Jazz - Los Angeles Lakers 96-121
Dallas Mavericks - Minnesota Timberwolves 121-114
Chicago Bulls - Memphis Grizzlies 106-99
Oklahoma City Thunder - Indiana Pacers 100-107
Atlanta Hawks - Brooklyn Nets 118-130
Boston Celtics - Miami Heat 112-93
Charlotte Hornets - Golden State Warriors 106-91
Detroit Pistons - Milwaukee Bucks 103-127
Orlando Magic - Phoenix Suns 128-114