Ráðherrar minnast Vihjálms Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. desember 2019 17:58 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra minnist í dag Vilhjálms Einarssonar íþróttamanns á Facebook-síðu sinni. Vilhjálmur lést í gær á á Landspítalanum, 85 ára að aldri. Ráðherrann fer fögrum orðum um íþróttakappann og segir hann þjóðhetju, auk þess sem afrek hans á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956 hafi markað djúp spor í Íslandssöguna, en Vilhjálmur hlaut þar silfurverðlaun í þrístökki. Katrín segir afrek Vilhjálms einstætt fyrir fámenna þjóð, og bendir á að aðeins tólf árum áður hafi Ísland orðið lýðveldi. Þá rifjar Katrín upp þegar hún sat hjá Vilhjálmi þegar minjasvæðið við Skriðuklaustur í Fljótsdal var opnað í ágúst 2012. Hér að neðan má lesa færslu forsætisráðherra. Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, birti einnig færslu á Facebook þar sem hún minntist Vilhjálms. „Vilhjálmur vann fyrstur Íslendinga til verðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. Ég var alin upp við þetta íþróttaafrek Vilhjálms, því var það sérstakur heiður að hitta hann við kjör á Íþróttamanni ársins fyrir nokkru,“ skrifar Lilja. Hún segir Vilhjálm þá einnig hafa verið mikinn brautryðjanda á sviði fræðslu- og æskulýðsmála hér á landi. Færslu Lilju má sjá hér að neðan.
Andlát Íþróttir Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Egill syrgir brottvísun vina sinna Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Segir Akranes verða svefnbæ Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Sjá meira