Jón Daði í byrjunarliðinu í þriðja leiknum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði og félagar eru í 11. sæti ensku B-deildarinnar.
Jón Daði og félagar eru í 11. sæti ensku B-deildarinnar. vísir/getty

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall sem gerði jafntefli við Cardiff City, 1-1, í ensku B-deildinni í dag. Þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem Selfyssingurinn er í byrjunarliðinu.

Millwall og Cardiff eru jöfn að stigum í 11.-12. sæti deildarinnar.

Topplið West Brom tapaði tveimur stigum gegn Barnsley á útivelli. Lokatölur 1-1. Aapo Halme skoraði jöfnunarmark Barnsley á lokamínútunni.

Brentford lyfti sér upp í 3. sæti deildarinnar með 3-1 sigri á Swansea City. Ollie Watkins skoraði tvö mörk fyrir Brentford en hann er þriðji markahæstur í deildinni með 15 stig.

Bobby Reid tryggði Fulham stig gegn Luton Town þegar hann skoraði á 93. mínútu. Lokatölur 3-3. Fulham er í 5. sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira