Innlent

Gul viðvörun um mest allt land og vegum lokað víða

Samúel Karl Ólason skrifar
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs um meirihluta landsins.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs um meirihluta landsins. Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs um meirihluta landsins. Viðvörunin er í gildi frá Vestfjörðum og austur eftir öllu landinu til Suðvesturlands. Vegagerðin segir að búast megi við því að Hringveginum á Suðausturlandi verði lokað í dag og þá til miðnættis í kvöld en færð fer versnandi víðast hvar á landinu nema suðvesturhorninu.

Vegagerðin hefur lokað fjölda vega í nótt vegna veðurs. Öxnadalsheiði hefur verið lokað. Víkurskarði, Vopnafjarðarheiði, Mývatnsöræfum, Hólasandi, Siglufjarðarvegi og Ljósavatnsskarði sömuleiðis.

Flestar leiðir á láglendi Suðvesturlands eru greiðfærar þó eitthvað séum hálkubletti á fjallvegum eins og Hellisheiði. Þá er mjög hvasst undir Hafnarfjalli.

Samkvæmt Veðurstofunni fer norðaustan hvassviðri eða stormur yfir landið í dag og má búast við lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum á vegum. Um mest allt land verður vindur á bilinu 18 til 23 metrar á sekúndu.



„Gengur í norðaustan hvassviðri eða storm, 18-23 m/s, norðan- og austantil, heldur hægari suðvestanlands. Hvessir frekar um landið suðaustanvert seinnipartinn, norðan 20-25 m/s í kvöld og nótt. Dregur úr vindi er líður á morgundaginn, 10-18 m/s víðast hvar undir kvöld, en hvassari á Vestfjörðum. Él eða snjókoma norðan- og austanlands en slydda eða rigning við sjóinn. Bjart með köflum og yfirleitt þurrt um landið sunnanvert. Hiti nálægt frostmarki, en upp í 8 stig með S-ströndinni,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Vegagerðin hefur sagt frá nýjustu vendingum varðandi færð á landinu undir #færðin á Twitter.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×