Fótbolti

Hamrén horfir til U-21 árs landsliðsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erik Hamrén.
Erik Hamrén. Vísir/Vilhelm
Erik Hamrén ætlar ekki að kalla leikmann inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Moldóvu á morgun. Þetta kom fram á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag.

Arnór Sigurðsson er meiddur en Hamrén hefur ekki enn kallað inn leikmann í hans stað.

Ef Hamrén ákveður að kalla inn leikmann fyrir leikinn gegn Albaníu ytra á þriðjudaginn horfir hann til U-21 árs landsliðsins sem mætir Lúxemborg í dag.

Nokkrir leikmenn í U-21 árs liðinu hafa leikið með A-landsliðinu, þ.á.m. Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður AGF.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×