Viðskipti innlent

Skýrsla um Lindarhvol tilbúin til yfirlestrar

Jakob Bjarnar skrifar
Skýrsla um Lindarhvol ehf, fyrirbæri sem Bjarni Benediktsson stofnaði til að annast sölu á eigum ríksins, er beðið með mikilli eftirvæntingu. Skýrslan er nánast tilbúin.
Skýrsla um Lindarhvol ehf, fyrirbæri sem Bjarni Benediktsson stofnaði til að annast sölu á eigum ríksins, er beðið með mikilli eftirvæntingu. Skýrslan er nánast tilbúin. visir/vilhelm

„Mér er ekki kunnugt um hvers vegna þingbeiðnin er fram komin. Nærtækast er að álykta að hlutaðeigandi alþingismönnum hafi verið ókunnugt um að verið væri þá þegar að vinna að úttekt á Lindarhvoli ehf.,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi í samtali við Vísi.

Fyrir liggur að hópur þingmanna undir forystu Ingu Sæland hefur óskað sérstaklega eftir því að ríkisendurskoðandi taki saman sérstaka skýrslu um Lindarhvol. En, hlutafélagið sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra stofnaði sérstaklega í apríl 2016 á sínum tíma til að annast sölu eigna í eigu ríkisins, hefur einmitt verið lengi til skoðunar hjá ríkisendurskoðanda og er stjórnsýsluúttekt væntanleg.

„Jú það er rétt hjá þér að Lindarhvoll ehf. er í úttekt hjá Ríkisendurskoðun. Þeirri úttekt er reyndar lokið að mestu. Rannsóknarvinnunni sjálfri er lokið en skýrslan er í rýni, það er yfirlestri og frágangi til útsendingar,“ segir Skúli.

Hópur þingmanna undir forystu Ingu Sæland hefur óskað eftir sérstakri skýrslu um Lindarhvol en svo skemmtilega vill til að stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðanda er einmitt svo gott sem tilbúin.visir/vilhelm

Víst er að skýrslunnar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu en leynd hefur ríkt um starfsemina. Þá hefur meðal annars komið fram að Þórhallur Arason, skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins fékk 327 þúsund krónur greiddar fyrir hvern fund meðan hann gegndi þar formennsku.

Að sögn Skúla tekur nú við umsagnarferli þar sem skýrslan mun verða send til umsagnar hjá félaginu og eftir atvikum einnig til annarra aðila.

„Að fengnum svörum og greinargerðum tekur við lokafrágangur hjá Ríkisendurskoðun þar sem farið verður yfir þær umsagnir sem berast. Í umsögn geta falist andmæli við niðurstöður skýrslunnar og þá þarf að meta hvort og þá hvernig skýrslan taki breytingum. Fer það eftir þeim lögfræðilegu álitamálum sem þá kunna að vera fyrir hendi.“

Að því verki loknu er gengið frá skýrslunni í endanlegan búning. Skýrslan fer fyrst til Alþingis, að sögn Skúla. „Þar gengur skýrslan til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar, þar sem skýrslan mun verða tekin fyrir í nefndinni. Þegar formlegri fyrirtekt hefur farið fram hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd verður skýrslan birt opinberlega.“


Tengdar fréttir

Bjarni skipar stjórn Lindarhvols

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur stofnað félagið Lindarhvol ehf. til að halda utan um þær eignir sem ríkið eignast vegna stöðugleikaframlaga.

Stjórnendurnir áttu næsthæsta tilboðið

Tvö af þeim þremur félögum sem skiluðu inn tilboði í 18 prósenta hlut ríkisins í Klakka tengjast stjórnendum Klakka. Annað félagið vildi ekki að upplýst yrði um þátttöku þess í söluferlinu. Lindarhvoli ber að afhenda gögn um söluferlið samkvæmt nýjum úrskurði.

Lögmannsstofa Steinars fékk 39 milljónir frá Lindarhvoli

Eignarhaldsfélagið Lindarhvoll keypti þjónustu af lögmannsstofu Steinars Þórs Guðgeirssonar, hæstaréttarlögmanns og ráðgjafa Lindarhvols, fyrir samtals um 39 milljónir án virðisaukaskatts á síðustu átta mánuðum ársins 2016.

Salan á Borgun verstu viðskipti ársins

Viðskiptin sjálf áttu sér stað 2014 en eftirmál þeirra litu dagsins ljós á þessu ári sem endaði með skýrslu frá Ríkisendurskoðun.

Ríkið fékk meira en milljarði minna

Verðið í kaupum framtakssjóðs og einkafjárfesta á Lyfju af íslenska ríkinu í fyrra var meira en milljarði lægra en það verð sem Hagar höfðu boðist til að greiða fyrir keðjuna árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×