Þegar sviðsljósið var á Lewis Hamilton, Sebastian Vettel, Max Verstappen og Daniel Ricciardo var það finnski ökuþórinn Valtteri Bottas sem reyndist hlutskarpastur í fyrsta kappakstri ársins í Formúlu 1 um helgina þegar hann kom fyrstur í mark í Melbourne, Ástralíu.
Í aðdraganda kappakstursins í Ástralíu voru augu flestra á Lewis Hamilton. Breski ökuþórinn á Mercedes-bílnum hefur verið í sérflokki undanfarin ár og eftir fjóra heimsmeistaratitla á undanförnum fimm árum var komið að því að gera atlögu að metum Michaels Schumacher. Hamilton sjálfur reyndi að dreifa athyglinni í aðdraganda kappakstursins og setja pressu á Ferrari sem komu hvað best út úr æfingunum í Barcelona en það var Bottas sem stal sviðsljósinu.
Hamilton var langfljótastur á æfingum fyrir helgi og fylgdi því eftir með því að ná ráspól, þeim 84. á ferlinum á laugardaginn, um tíu sekúndubrotum á undan liðsfélaga sínum hjá Mercedes, Bottas.
Í kappakstrinum sjálfum var það Bottas sem komst fram fyrir Hamilton strax í upphafi og átti óaðfinnanlegan dag. Bottas kom í mark á 1:25,27 og var með tuttugu sekúndna forskot á liðsfélaga sinn, Hamilton sem þurfti að einbeita sér að því að halda aftur af Max Verstappen í stað þess að eltast við Bottas.
Þá fékk Bottas aukastig fyrir fljótasta hringinn í kappakstrinum í tvöföldum sigri Mercedes en Ferrari þurfti að láta fjórða og fimmta sætið duga í fyrsta kappakstri ársins.
Bottas, sem náði ekki að fylgja eftir frábæru tímabili í fyrra, var að vonum í skýjunum eftir fyrsta kappakstur ársins.
„Það er erfitt að útskýra hvað fór úrskeiðis andlega á síðasta tímabili en það breyttist eitthvað í vetur. Þetta var besta frammistaða mín frá upphafi. Bíllinn var fullkominn og ég naut þess að keyra í dag,“ sagði Bottas í samtali við fjölmiðlamenn eftir kappaksturinn.
Næsti kappakstur fer fram í olíuríkinu Barein eftir tvær vikur og fá liðin því nú viku til að fínstilla bílinn og fara yfir hvað fór úrskeiðis í kappakstri helgarinnar. Miðað við fyrsta kappaksturinn skyldi enginn afskrifa að ökuþór frá Mercedes vinni sjötta árið í röð.
Óaðfinnanlegur dagur hjá Finnanum Bottas
