Creditinfo hefur gert 2,3 milljarða króna samning við seðlabanka Ómans. Íslenska fyrirtækið selur bankanum tölvukerfi sem veitir upplýsingar til að meta umsækjendur lána og veitir viðeigandi þjónustu. Komið verður á fót skrifstofu í Óman. Mun starfsfólk frá Tékklandi og Íslandi flytja þangað.
„Þetta er langstærsti samningur sem gerður hefur verið í okkar geira í langan tíma. Það er gaman að seðlabanki Ómans hafi valið íslenskt fyrirtæki í verkefnið,“ segir Reynir Grétarsson, stjórnarformaður fyrirtækisins.
Reynir segir efnahag Ómans afar háðan olíuframleiðslu. Vilji sé til að auka fjölbreytileika efnahagslífsins. „Þeir sjá aðgang að lánsfjármagni sem lykilatriði fyrir þá sem vilja fjárfesta í nýjum verkefnum í landinu,“ segir hann. Þá sé vilji til að almenningur eigi greiðan aðgang að lánsfjármagni. „Skilvirk kerfi með lánshæfisupplýsingum eru forsenda þess.“
Að hans sögn hefur Óman haft kerfi sem innleitt var af keppinaut Creditinfo. „Það var ekki að virka nógu vel, meðal annars af því að ekki var til staðar næg þekking á því hvernig ætti að reka kerfið og þróa aðrar vörur en einfalda upplýsingamiðlun um skuldastöðu,“ segir Reynir. Creditinfo er með starfsemi í 33 löndum.
