CCTV er fatamerki sem vinirnir Aron Freyr Kristjánsson og Guðmundur Magnússon stofnuðu fyrir tveimur árum, en merkið verður tveggja ára núna í júní. Þeir Aron og Guðmundur eru báðir 22 ára og voru að ljúka sínu fyrsta ári í Listaháskóla Íslands, Aron í grafískri hönnun og Guðmundur í fatahönnun.

CCTV hefur átt góðu gengi að fagna og er merkið nú vel þekkt meðal ungra tískuunnenda um allt land. Þetta er í fjórða skipti sem þeir opna tímabundið verslun af þessu tagi en þeir hafa einnig verið með ýmis „online drop“, þar sem flíkurnar eru seldar á netinu.
„Við byrjuðum að hanna þessa nýju línu í samstarfi við 66°Norður fyrir um átta mánuðum. Þetta hófst þannig að við komum með hugmynd að jakka til þeirra. Við höfðum verið að skoða efni í Álnavörubúðinni í Hveragerði og rákumst á þetta regnkápuefni sem okkur langaði að prófa að gera eitthvað óvenjulegt við.“
Aron segir þá hafa gert prufueintak og strax séð að þetta væri eitthvað sem þeir fíluðu.

Þeir segjast báðir fylgjast vel með tískunni. Það haldist í hendur við vinnu þeirra við CCTV.
„Við fylgjumst alveg með tísku en reynum frekar að vera undir áhrifum þess sem er í gangi í kringum okkur og frá fólki sem við þekkjum. Annars fær maður auðvitað innblástur alls staðar að í listum, hvort sem það er tónlist, kvikmyndir, myndlist eða manneskjur,“ segir Guðmundur.
Aron segir þá verða orðna spennta fyrir að frumsýna nýju línuna.
„Við erum búnir að bíða spenntir eftir þessu í langan tíma og núna er loksins komið að þessu. Þetta er líka flottara en það sem við höfum verið að gera, bæði flíkurnar og framsetningin. Ari Magg sá um að skjóta línuna fyrir okkur. Hann tók myndirnar á töluvert hærra plan en það sem við höfum áður gert. Við verðum með innsetningar í búðarrýminu svo þetta verður blanda af fataverslun og listasýningu.“

„Já, ég hef alltaf haft áhuga á fötum og tísku að minnsta kosti, en áhuginn á fatahönnun kviknaði bara í rauninni þegar við byrjuðum með CCTV. Við vissum þannig séð ekkert þegar við vorum að byrja. En í sumar verð ég í starfsnámi hjá Arnari Má Jónssyni fatahönnuði í London,“ svarar Guðmundur.
Aron segir samstarfið við 66°Norður hafa gengið mjög vel og að þeir séu afar þakklátir fyrirtækinu að hafa vilja til að gera þetta með þeim. „Líka bara að gefa okkur þetta tækifæri,“ segir Aron að lokum.
Vörurnar eru framleiddar í verksmiðjum 66°Norður og verða fáanlegar í takmörkuðu upplagi.
Haldið verður kynningarteiti í dag að Hverfisgötu 39 þar sem hin nýja samstarfslína CCTV og 66°Norður verður kynnt með viðhöfn.
Plötusnúðarnir Krabba Mane og Prince Fendi sjá um að halda uppi stuðinu og boðið verður upp á léttar veitingar. Búðin verður opin frá klukkan 17 til 22.
