

Bankar og lífskjarasamningar
Kostnaðarhlutföll íslenskra banka eru oftar en ekki borin saman við sambærileg hlutföll erlendra banka og gildir þá einu hvort um er að ræða banka af sambærilegri stærðargráðu og þeir íslensku eða alþjóðlegir risabankar. Í þessum samanburði er sjaldan tekið tillit til þess að það sem einkennir rekstrarumhverfi íslenskra banka í samanburði við aðra banka á Vesturlöndum er séríslensk álagning opinberra gjalda. Til slíkra gjalda má nefna sérstakan bankaskatt sem einn og sér er miðað við núverandi álagningu um 12% af rekstrarkostnaði bankanna. Þá eru lagður fjársýsluskattur á launagreiðslur fjármálafyrirtækja og sérstakur fjársýsluskattur á hagnað fjármálafyrirtækja umfram 1 milljarð. Ofangreindir þrír skattar skila ríkissjóði um 15 milljörðum sem er um helmingur af launakostnaði banka sem eru aðalgreiðendur þeirra. Íslenskir bankar hafa á undanförnum árum verið að borga um 40 milljarða í opinber gjöld á ári. Helmingurinn af þessari upphæð, eða um 20 milljarðar, er ótekjutengdur. Heildarvaxtatekjur stóru viðskiptabankanna hafa á undanförnum árum verið í kringum 100 milljarðar og eru því ótekjutengd gjöld um fimmtungur af þeirri upphæð.
Auk þessa búa íslensku bankarnir við hærri eiginfjárkröfur en þekkist í nágrannalöndunum og það sama gildir um grunninn sem eiginkrafan reiknast af. Birtingarform íslensku sérstöðunnar á fjármálamarkaði kemur einnig fram í þeirri staðreynd að Seðlabanki Íslands borgar ekki vexti af helmingi bindiskyldu innlánastofnana auk þess sem hann lætur þær einar standa straum af hluta þess kostnaðar sem fylgir því að viðhalda stórum gjaldeyrisforða. Allir þessir þættir setja þrýsting á að vaxtamunur sé hærri en ella.
Inntak lífskjarasamninga þeirra sem nýverið voru undirritaðir á vinnumarkaði var meðal annars að leita leiða til að lækka vaxtastig í landinu. Mörg tækifæri eru til þess þegar kemur að rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja. Með hvítbók stjórnvalda um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið fylgja ítarleg minnisblöð frá Bankasýslu ríkisins þar sem fjallað er um fjölmarga þætti í rekstri íslenskra banka. Í þeim er einmitt fjallað um skilvirkar leiðir til þess að minnka vaxtamuninn í íslensku bankakerfi. Þá hafa Samtök fjármálafyrirtækja bent á að lægri opinber gjöld, lægri eiginfjárkröfur og aukið hagræði meðal annars með auknu samstarfi um rekstur innviða fjármálakerfisins gæti eflt samkeppnisfærni.
Samkvæmt greiningu Bankasýslunnar myndi lækkun á eftirlitsgjaldi til FME um 10% ásamt helmingslækkun á fjársýsluskatti á laun annars vegar og hagnað umfram milljarð hins vegar geta lækkað vaxtamun vaxtaberandi eigna og skulda úr 2,6% niður í 2,3%. Þessi útreikningur miðast við að stjórnvöld standi við áform ríkisfjármálaáætlunar um að lækka gjaldhlutfall bankaskattsins úr 0,376 niður í 0,145% í jöfnum skrefum á árunum 2020-2023. Til viðbótar telur Bankasýslan að lækkun eiginfjárkrafna og hagræðing sem skilar sér í lægri rekstrarkostnaði í tengslum við samstarf um rekstur sameiginlegra fjármálainnviða gæti leitt til þess að vaxtamunurinn færi niður í 2,1%.
Fram hjá því verður ekki horft að fjármálafyrirtæki geta ekki borið allar þessar álögur til lengri tíma án þess að það komi niður á innlendri fjármálastarfsemi, skerði samkeppnisfærni þeirra og dragi úr getu þeirra til að ná niður kostnaði til viðskiptavina sinna. Fjármálafyrirtækin taka á hverjum degi þátt í því með fjölskyldum að fjármagna fasteignir og ávaxta sparifé þeirra, þá taka þau þátt í því með atvinnulífinu að fjölgja störfum með því að fjármagna fjárfestingar íslenskra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum sem gerir þeim kleift að stækka og eflast. Umræðan um lífskjörin þarf því að taka til kostnaðar og rekstrarumhverfis fjármálafyrirtækja.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
Skoðun

Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði
Ólafur Ingólfsson skrifar

Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni
Helga Kristín Kolbeins skrifar

Fé án hirðis
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Myllan sem mala átti gull
Andrés Kristjánsson skrifar

Sjö mýtur um loftslagsbreytingar
Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Pírati pissar í skóinn sinn
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu
Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar

Fáum presta aftur inn í skólana
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina
Hópur Röskvuliða skrifar

Icelandic Learning is a Gendered Health Issue
Logan Lee Sigurðsson skrifar

Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar
Már Wolfgang Mixa skrifar

Framtíð Öskjuhlíðar
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra
Inga Sæland skrifar

Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu
Erlingur Erlingsson skrifar

Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands
Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar

Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur
Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar

Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Getur Sturlunga snúið aftur?
Leifur B. Dagfinnsson skrifar

Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki
Gunnar Ásgrímsson skrifar

Vorbókaleysingar
Henry Alexander Henrysson skrifar

Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps?
Snorri Másson skrifar

Liðveisla fyrir öll
Atli Már Haraldsson skrifar

Réttur til endurtektarprófa: Jafnræði í námi fyrir alla stúdenta
Vera Mist Magnúsdóttir,Guðlaug Eva Albertsdóttir skrifar

Að standa við stóru orðin
Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar

Aðför að landsbyggðinni – og tilraun til að slá ryki í augu almennings
Ingibjörg Isaksen skrifar

Deyr mjólkurkýrin ef eigandi hennar fær eitt viðbótar mjólkurglas?
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Kynlíf veldur einhverfu: Opið bréf til Háskóla Íslands og fjölmiðla
Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Margrét Oddný Leópoldsdóttir skrifar

Ég virði þig og þín mörk, virðir þú mig og mín mörk ?
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar