Þetta er merkasta orðan sem venjulegir þegnar í Bandaríkjunum geta fengið. Tiger er nýbúinn að vinna sitt fimmtánda risamót á ferlinum en hann varð hlutskarpastur á Masters-mótinu í síðasta mánuði.
„Vilji Tigers til þess að vinna er einstakur. Þessir eiginleikar eru einkennandi fyrir bandaríska andann þar sem fólk leggur allt á sig og er tilbúið að fórna miklu,“ sagði forsetinn við athöfnina.
.@TigerWoods becomes the fourth golfer in history to receive the Presidential Medal of Freedom. pic.twitter.com/NoQCXKphCX
— Golf Channel (@GolfChannel) May 6, 2019
„Þið hafið séð það góða og slæma hjá mér. Hápunktana og sömuleiðis þegar ég hef verið langt niðri. Ég væri ekki hér án aðstoðar ykkar,“ sagði Tiger auðmjúkur.
Tiger er fjórði kylfingurinn sem hlotnast þessi heiður á eftir Jack Nicklaus, Arnold Palmer og Charlie Sifford sem varð fyrsti þeldökki kylfingurinn sem komst inn á PGA-mótaröðina.
Þessi orða er jafnan veitt íþróttamönnum sem skarað hafa fram úr en á meðal þeirra sem einnig hafa fengið orðuna má nefna Michael Jordan, Muhammad Ali og Billie Jean King.
It’s an incredible privilege to be awarded the Presidential Medal of Freedom. Considering the recipients, history, and what this means to me and my family, it’s also very humbling. Thank you all for your support and I hope this inspires others to never give up on their dreams. pic.twitter.com/33CJIHwQvz
— Tiger Woods (@TigerWoods) May 7, 2019