Dauðarefsing afnumin í New Hampshire í óþökk ríkisstjórans Andri Eysteinsson skrifar 30. maí 2019 18:21 Ríkisstjórinn gerði tilraun til þess að beita neitunarvaldi. Getty/Shannon Finney
Dauðarefsing hefur nú verið afnumin í New Hampshire-ríki Bandaríkjanna eftir að öldungardeild ríkisþingsins greiddi atkvæði með því að hafna neitun ríkisstjórans við afgreiðslu málsins. Guardian greinir frá. Ríkisstjórinn, Chris Sununu úr Repúblikanaflokknum, hafði beitt neitunarvaldi sínu eftir að fulltrúadeild ríkisþingsins hafði samþykkt lagafrumvarp sem myndi afnema dauðarefsingu í ríkinu, en dauðarefsingu hefur ekki verið beitt í ríkinu frá árinu 1939. Einn fangi situr á dauðadeild í ríkinu, Michael Addison sem dæmdur var sekur fyrir að hafa myrt lögregluþjón í Manchester í New Hampshire. Hægt var að dæma til dauða í sjö tilvikum í ríkinu, morð á lögreglumanni eða dómara, leigumorð, morð og nauðgun, ákveðin eiturlyfjabrot, morð við innbrot og ef fangi sem dæmdur hafi verið til lífsstíðarfangelsisvistar fremji morð. Skiptar skoðanir eru á afturvirkni laganna en þingkonan Sharon Carson telur að að dauðarefsingu Addison verði breytt í lífsstíðarfangelsi. Carson telur að dómstólar muni túlka lögin með þeim hætti en þó er ekki gert ráð fyrir afturvirkni í lögunum.
Bandaríkin Mest lesið Icelandair hættir flugi til Ísafjarðar Innlent Þungt haldinn eftir að hafa farið í sjóinn Innlent Telur einnar nætur virði að reyna að fá Spasskí Innlent Kona féll fram af svölum fjölbýlishúss í Breiðholti Innlent Páfinn glímir við mikil öndunarvandræði en þó með meðvitund Erlent Slegin óhug vegna eyðileggingarmáttar náttúruaflanna Innlent Kennari mun ekki hlýða snjallsímabanni í skólum Innlent Enginn uppfyllti skilyrðin í upphafi Innlent Telur tjónið nema milljarði: Mölbrotinn flygill og gólfið eins og sjávarbotn Innlent Sérsveitaraðgerð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Páfinn glímir við mikil öndunarvandræði en þó með meðvitund Tveir látnir í Mannheim Einn látinn í Mannheim eftir að bíl var ekið á fólk „Maðurinn með gullarminn“ látinn Cuomo býður sig fram til borgarstjóra New York Erfitt að sjá aðila ná saman um annan fasa vopnahlésins Hegseth fyrirskipar hlé á netaðgerðum gegn Rússum Starmer segir tíma aðgerða til kominn Hundruð Bandaríkjamanna mótmæltu í nafni Úkraínu Stöðva allan vöruinnflutning inn á Gasa Skrifuðu undir 400 milljarða króna lán til vopnaframleiðslu Kastaðist í kekki milli sendiherrans og öldungadeildarþingmanns Vonast til að geta átt gott samband við Trump Fyrsti fasi vopnahlésins á enda og framtíðin óljós Létust líklega tíu dögum fyrir fundinn Áður óséð hegðun Bandaríkjamanna gagnvart vinaþjóðum Heilsu páfans hrakar skyndilega Selenskí mætti í viðtal hjá Fox: Ítrekaði þakklæti sitt til Bandaríkjanna Viðbrögð Evrópu: „Í dag varð það ljóst að hinn frjálsi heimur þarf nýjan leiðtoga“ Ríkisútvarpið leggur niður störf í miðri kosningabaráttu Selenskí þakkar fjórum sinnum fyrir sig Segir Selenskí vanþakklátan og hætta á heimsstyrjöld Trump afturkallar styrki til 5.800 þróunarverkefna Mexíkóar framselja 29 stórglæpamenn til Bandaríkjanna Mynduðu stjórn án stærsta flokksins Herinn gerir upp mistökin í aðdraganda árásarinnar 7. október „Breskir hermenn geta séð um sig sjálfir“ Boris Spassky er látinn Lögreglan lýsir dauða Hackman og konu hans sem „grunsamlegum“ Öcalan vill leysa upp PKK Sjá meira