Fransesco Molinari leiddi mótið fyrir lokahringinn í dag en Tiger var tveimur höggum á eftir honum. Molinari lenti hins vegar í vandræðum á meðan Tiger hélt velli. Hann var tveimur höggum á undan næstu mönnum þegar hann átti tvær holur eftir.
Á átjándu holu lenti hann í smá vandræðum, missti púttið fyrir pari en þar sem hann var með tveggja högga forystu fyrir holuna mátti hann við því að fá skolla. Hann fékk frekar einfalt pútt fyrir skollanum, til þess að tryggja sigurinn, og það fór örugglega ofan í.
Tiger fagnaði sigrinum innilega, enda hafði hann beðið lengi eftir sigri á risamóti. Sá síðasti kom fyrir ellefu árum og síðasti sigurinn á Masters varð 2005.
Hann hafði gengið í gegnum mikið til þess að ná sigrinum, en hann fór í fjórar bakaðgerðir á fjórum árum og er aðeins um eitt og hálft ár síðan hann fór aftur að spila golf að ráði eftir bakmeiðslin.